Lífið

Britney Spears og Elton John sameina krafta sína

Elísabet Hanna skrifar
Það verður spennandi að sjá hvernig Tiny Dancer kemur út í þeirra útgáfu.
Það verður spennandi að sjá hvernig Tiny Dancer kemur út í þeirra útgáfu. Getty/J. Merritt/JMEnternational

Söngkonan Britney Spears virðist ætla að gefa út nýja tónlist og það með engan annan en Elton John sér við hlið. Samkvæmt heimildum Page Six hafa þau sameinað krafta sína í endurútgáfu af laginu „Tiny Dancer“ sem kom upphaflega út árið 1971.

„Þetta var hugmyndin hans Eltons en Britney er mikill aðdáandi,“ sagði heimildin og bætti við: „Britney var í upptökuverinu í Beverly Hills í síðustu viku með Elton í háleynilegum upptökutíma með upptökustjóranum Andrew Watt.“ Andrew hefur áður unnið að tónlist með Justin Bieber, Miley Cyrus, Pearl Jam og Ozzy Osbourne og hlaut Grammy verðlaun á síðasta ári. 

„Þau eru búin að spila það fyrir fólk hjá útgáfufyrirtækinu og allir eru að missa sig, það er svo gott,“ segir heimildin einnig sem telur lagið sem um ræðir vera lag sumarsins og segir það væntanlegt í næsta mánuði. Hér að neðan má heyra upprunalegu útgáfuna sem naut sín einnig vel í bíómyndinni Almost Famous.

Of langt síðan röddin heyrðist

Það er vika síðan Britney deildi myndbandi af sér á Instagram miðli sínum með undirskriftinni: „Ég hef ekki deilt röddinni minni í mjög langan tíma ... kannski of langan tíma.“ Út frá þessum orðum töldu margir aðdáendur hennar að nýtt efni væri væntanlegt og virðist sú vera raunin. 

Í sömu færslunni lýsti hún því hvernig hún hafi óskað eftir endurgerð á laginu Baby one more time í gegnum árin að fjölskyldan hennar hafi eyðilagt það fyrir sér áður en hún hlaut sjálfræðið sitt aftur í nóvember í fyrra eftir að hafa misst það árið 2008. Það er því stórt skref fyrir Britney að stíga aftur inn í tónlistina, á sínum eigin forsendum.

Britney hefur ekki verið hrædd við að lýsa yfir reiði gagnvart fjölskyldunni sinni eftir að hún náði að slíta sig frá þeim líkt og sjá má á Instagram miðli hennar. Á brúðkaupsdaginn hennar í síðasta mánuði var engum fjölskyldumeðlim boðið og fylgi hún sér sjálf niður altarið. 


Tengdar fréttir

Má kjósa, keyra og eignast barn í fyrsta sinn í fjór­tán ár

Tónlistargoðsögnin Britney Spears fagnaði sigri í sjálfræðisbaráttu sinni um helgina með því að drekka sitt fyrsta kampavínsglas. Undanfarin tæp fjórtán ár hefur Britney nefnilega ekki mátt borða, drekka eða gera nokkuð án þess að fá leyfi frá föður sínum. 

Britney Spears og Sam áttu drauma brúðkaupsdag þrátt fyrir innbrotið

Poppstjarnan Britney Spears giftist ástinni sinni Sam Asghari í gær við athöfn sem fór fram á heimili hennar en líkt og greint hefur verið frá braust fyrrverandi eiginmaður hennar inn í brúðkaupið. Synir hennar Sean Preston og Jayden James voru ekki viðstaddir en gáfu út yfirlýsingu um að þeir væru ánægður fyrir hennar hönd.

Fyrr­verandi braust inn í brúð­kaup Brit­n­ey

Lögregla var kölluð að heimili poppstjörnunnar Britney Spears eftir að Jason Alexander, fyrrverandi eiginmaður hennar til tæplega sextíu klukkutíma, braust inn í brúðkaup hennar og unnustans Sams Asghari.

Britney Spears á í miklum deilum við systur sína á samfélagsmiðlum

Britney Spears hefur staðið opinberlega í deilum við systur sína Jamie-Lynn í gegnum miðla og ásakar hana um að nota sig til þess að selja nýju bókina sína. Britney hefur áður haldið því opinberlega fram að systir hennar hafi ekki staðið við bakið á sér í gegnum sjálfræðisdeiluna sem Britney þurfti að herja við föður sinn í heil 13 ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.