Innlent

Ætlaði að hjóla hringinn í kringum Ís­land en hjólið finnst ekki ellefu dögum síðar

Bjarki Sigurðsson skrifar
Maðurinn hefur verið hér í ellefu daga án hjólsins en hringferðin átti að taka hann fjórtán daga. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Maðurinn hefur verið hér í ellefu daga án hjólsins en hringferðin átti að taka hann fjórtán daga. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty

Hjólreiðamaðurinn Simon Owens kom hingað til Íslands frá Bretlandi fyrir ellefu dögum síðan. Hann ætlaði sér að hjóla í kringum landið á tveimur vikum en hjólið hefur enn ekki borist til landsins.

Owens lenti á Keflavíkurflugvelli þann 2. júlí síðastliðinn í þeirri trú um að farangur hans kæmi í næstu vél Menzies Aviation. Sjálfur flaug Owens með Icelandair til landsins. Farangurinn hefur þó aldrei komið og því vantar hann enn hjólið sitt, tjald, föt og meiri búnað.

Simon Owens.Skjáskot/Facebook

„Þetta er eitthvað sem ég hef hlakkað til í marga mánuði. Þannig það að þetta sé tekið frá mér, það veldur mér vonbrigðum og er pirrandi,“ segir Owens í samtali við BBC.

Hann hefur leigt sér „camper“-bíl og dvelur nú í honum líkt og síðustu ellefu daga. Hann er einungis með handfarangurinn sinn með sér.

„Ég er heppinn að vera með vinnu, sparnaðarreikning og kreditkort. En rúmlega 300 þúsund króna auka kostnaður hefði ég getað notað í þrjár eða fjórar hjólaferðir,“ segir Owens.

Owens á týnda hjólinu.Skjáskot/Facebook

Fólkið hjá Menzies Avitation sem Owens hefur rætt við hafa lítið getað hjálpað honum en einu skilaboðin sem hann fær er að verið sé að leita að farangrinum hans og að hann verði látinn vita þegar hann finnst.

Hann þorir ekki að fara úr landi ef hjólið skyldi koma loks til Íslands þegar hann er farinn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×