Þjálfun flugmanna að hefjast á fyrstu rafmagnsflugvél Íslands Kristján Már Unnarsson skrifar 4. júlí 2022 22:42 Rafmagnsflugvélin TF-KWH dregin út úr flugskýli Geirfugls í Fluggörðum síðdegis. Frumkvöðlarnir Friðrik Pálsson og Matthías Sveinbjörnsson draga vélina ásamt sænska flugkennaranum Rickard Carlsson, sem heldur um skrúfuna. Einar Árnason Fyrsta rafmagnsflugvél Íslands er komin með flughæfisskírteini og hefst þjálfun flugmanna á næstu dögum. Flugvélin var dregin út úr flugskýli á Reykjavíkurflugvelli síðdegis en stefnt er að því að æfinga- og reynsluflug verði frá flugvellinum á Hellu á Rangárvöllum.
Í fréttum Stöðvar 2 mátti sjá myndir af flugvélinni á Reykjavíkurflugvelli en hálft ár er frá því hún kom með skipi til landsins, ósamansett í vagni. Núna er hún loksins orðin flughæf. Þeir Friðrik Pálsson, hótelstjóri á Rangá, og Matthías Sveinbjörnsson, forseti Flugmálafélags Íslands, höfðu frumkvæði að því vélin var keypt en þeir hafa síðan fengið til liðs við sig sterka bakhjarla. Félagið Rafmagnsflug ehf., sem stofnað var um verkefnið, flutti vélina til landsins með það að markmiði að taka frumkvæði í orkuskiptum í flugi, þjálfa starfsfólk í þessari nýju tækni og kynna hana fyrir landsmönnum. Þeir Friðrik Pálsson og Matthías Sveinbjörnsson stóðu fyrir því að fyrsta rafmagnsflugvélin var keypt til landsins. Hún er tveggja sæta af gerðinni Pipistrel.KMU „Þetta er fyrsta skráða íslenska flugvélin sem gengur eingöngu fyrir rafmagni,“ segir Matthías. Búið sé að þjálfa flugvirkja í að sinna rafmagnsflugvélum. „Og nú er bara næsta skref að fara að þjálfa flugmenn og svo getum við farið að leyfa fólki að prófa,“ segir Matthías. Í fréttatilkynningu segja aðstandendur verkefnisins að Ísland sé í einstakri stöðu til þess að vera í fararbroddi í heiminum hvað orkuskipti í flugi varðar vegna stuttra flugleiða innanlands, góðs aðgengis að umhverfisvænni raforku, auk þess sem lega landsins milli Evrópu og Norður-Ameríku geti til framtíðar skapað margvísleg tækifæri þegar komi að orkuskiptum í millilandaflugi. Friðrik Pálsson tekur undir þá fullyrðingu að rafvæðing flugsins marki ákveðin þáttaskil. „Og meira en svo. Þegar rafmagnsbílarnir voru að byrja á sínum tíma þá voru margir sem ekki höfðu trú á því. Síðan hefur orðið algjör bylting í hugsunarhætti. Mjög margir tala um það í dag að við eigum eftir að sjá að flugið verði umhverfisvænsti ferðamátinn. Og þá tökum við líka mið af því að það verði umhverfisvænna en rafmagnsbílar,“ segir Friðrik. Nöfn helstu bakhjarla verkefnisins eru merkt á flugvélinni. Í þeim hópi eru nokkur af stærstu fyrirtækjum landsins sem og helstu flugskólar, en vélin er einkum ætluð til flugkennslu.KMU Sænskur flugkennari, Rickard Carlsson, kom til landsins í dag til að kenna fjórum íslenskum flugkennurum á vélina. „Þetta er ekki bara umhverfisvænt. Þetta er líka ódýrara. Þetta er einfaldara í rekstri. Þetta er hljóðlátt. Það er svo margt sem fylgir þessu og algerlega skref sem við verðum að taka og reyna að flýta okkur eins hratt í þá átt að það verði raunveruleg orkuskipti í flugi,“ segir Matthías. Í fréttatilkynningu segir að fyrst um sinn sé raunhæft að horfa til orkuskipta minni flugvéla og því næst í farþegaflugi innanlands. Til þess að gera orkuskipti möguleg sé samstarf lykilaðila mikilvægt, svo sem flugfélaga, flugvalla og orkufyrirtækja. En hvenær má ætla að farþegaflug innanlands verði orðið rafvætt? „Það eru aðilar sem eru að framleiða vélar núna sem eru nokkurn veginn fullvissir um það að í byrjun árs 2026 þá verði nítján sæta flugvélar farnar að fljúga, bæði hér innanlands á Íslandi þessvegna, og víða í Evrópu,“ svarar Friðrik. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Fréttir af flugi Loftslagsmál Umhverfismál Reykjavíkurflugvöllur Orkumál Orkuskipti Tengdar fréttir Fyrsta rafmagnsflugvélin í sögu íslensks flugs komin til landsins Fyrsta rafmagnsflugvél Íslendinga kom til landsins með skipi í dag, innpökkuð í vagni. Þessari litlu tveggja sæta flugvél er ætlað að kynna Íslendingum rafvæðingu flugsins og er vonast til að hún verði komin í flugkennslu með vorinu. 27. desember 2021 21:31 Fyrsti rafmagnsflugmaður Íslands: „Ótrúlega spennandi að vera partur af þessari þróun“ Eyleif Ósk er 25 ára gömul og starfar sem flugkennari og flugmaður í Svíþjóð, þar sem hún sérhæfir sig í að fljúga rafmagns flugvélum. Eftir að hafa spurst fyrir hér heima segir hún ljóst að hún sé fyrsti rafmagns flugmaður Íslands. Blaðamaður hafði samband við Eyleif og fékk að skyggnast inn í hennar spennandi heim. 23. maí 2022 15:06 Flugvélin sem gæti orðið sú fyrsta rafknúna hjá Icelandair Ráðamenn Icelandair telja að vetnis- og rafmagnsflugvélar geti orðið raunhæfur kostur í innanlandsfluginu á fáum árum og hafa skrifað undir tvær viljayfirlýsingar við erlend fyrirtæki með það að markmiði að verða á meðal fyrstu flugfélaga heims til að gera innanlandsflug kolefnislaust. 14. júlí 2021 22:44 Spáir því að Íslendingar fljúgi á rafmagni innan 7 til 8 ára Rafmagnsbylting er framundan í flugsamgöngum, að mati flugáhugamannsins Friðriks Pálssonar, sem spáir því að rafknúnar flugvélar verði farnar að fljúga í innanlandsfluginu innan sjö til átta ára. 9. júní 2020 23:24 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Loka öllum síðunum vegna öryggisgalla Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk Sjá meira
Fyrsta rafmagnsflugvélin í sögu íslensks flugs komin til landsins Fyrsta rafmagnsflugvél Íslendinga kom til landsins með skipi í dag, innpökkuð í vagni. Þessari litlu tveggja sæta flugvél er ætlað að kynna Íslendingum rafvæðingu flugsins og er vonast til að hún verði komin í flugkennslu með vorinu. 27. desember 2021 21:31
Fyrsti rafmagnsflugmaður Íslands: „Ótrúlega spennandi að vera partur af þessari þróun“ Eyleif Ósk er 25 ára gömul og starfar sem flugkennari og flugmaður í Svíþjóð, þar sem hún sérhæfir sig í að fljúga rafmagns flugvélum. Eftir að hafa spurst fyrir hér heima segir hún ljóst að hún sé fyrsti rafmagns flugmaður Íslands. Blaðamaður hafði samband við Eyleif og fékk að skyggnast inn í hennar spennandi heim. 23. maí 2022 15:06
Flugvélin sem gæti orðið sú fyrsta rafknúna hjá Icelandair Ráðamenn Icelandair telja að vetnis- og rafmagnsflugvélar geti orðið raunhæfur kostur í innanlandsfluginu á fáum árum og hafa skrifað undir tvær viljayfirlýsingar við erlend fyrirtæki með það að markmiði að verða á meðal fyrstu flugfélaga heims til að gera innanlandsflug kolefnislaust. 14. júlí 2021 22:44
Spáir því að Íslendingar fljúgi á rafmagni innan 7 til 8 ára Rafmagnsbylting er framundan í flugsamgöngum, að mati flugáhugamannsins Friðriks Pálssonar, sem spáir því að rafknúnar flugvélar verði farnar að fljúga í innanlandsfluginu innan sjö til átta ára. 9. júní 2020 23:24