Innlent

Landbúnaðarháskólanum falið að koma með tillögur um eflingu kornræktar

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Aukin kornrækt myndi stuðla að auknu fæðuöryggi á Íslandi.
Aukin kornrækt myndi stuðla að auknu fæðuöryggi á Íslandi.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur falið Landbúnaðarháskóla Íslands að vinna drög að aðgerðaáætlun til eflingar kornræktar. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins, þar sem segir að mikilvægi innlendrar kornræktar hafi aukist verulega í tengslum við fæðuöryggi þjóðarinnar.

„Efling innlends kornmarkaðar er eitt stærsta viðfangsefni verkefnisins. Einnig verður skilgreind nauðsynleg uppbygging á sviði kynbóta, bútækni og aðlögun stuðningskerfa í takt við það sem þekkist erlendis. Fýsileiki innlends kornsamlags verður kannaður og skilgreindar þarfir á lágmarksbirgðum kornvöru í landinu,“ segir í tilkynningu um málið.

Vinnuhópurinn verður skipaður sérfræðingum á sviði landbúnaðar, kornræktar, verkfræði og viðskipta. Hann mun kynna sér starfsemi, kerfi og eignarhald kornsamlaga á Norðurlöndunum og skoða starfsemi innlendra samlaga í innlendum landbúnaðargreinum.

„Staðsetning væntanlegs samlags auk þurrkstöðva og korngeymslna er mikilvæg og því verður lögð áhersla á að finna sem hentugasta staðsetningu. Þar spilar inn í nálægð við framleiðendur, markaði, nýtingu jarðvarma o.fl. Kannað verður hvernig og hvort sé hægt að nýta fyrirliggjandi innviði sem best í þessu samhengi, s.s. þurrkstöðvar og minni geymslur sem eru nú þegar í rekstri.

Hópurinn mun leggja til aðgerðir til að bregðast við árum þar sem uppskera á korni er rýr með það að markmiði að vernda bæði bændur og kaupendur og lágmarka fjárhagslegt tjón.“

Vinna hópsins hefst í ágúst næstkomandi og á að ljúka í mars 2023.

Hópinn skipa Egill Gautason, Helgi E. Þorvaldsson, Hrannar S. Hilmarsson og Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×