Enski kylfingurinn Ian Poulter hyggst áfrýja úrskurði forráðamanna PGA-mótaraðarinnnar um að vísa honum og 16 öðrum kylfingum úr keppni á mótaröðinni.
Eins og greint var frá á Vísi fyrr í kvöld var kylfingum vísað úr PGA-mótaröðinni vegna þátttöku þeirra á boðsmóti á vegum LIV Golf en mótið hófst í nágrenni Lundúna í kvöld.
Boðsmót LIV Golf, sem eru fjármögnuð af sádí-arabískum fjárfestingarhópi hafa klofið golfheiminn i tvennt og þeir kylfingar sem þáðu boð Sádana hafa verið spurðir siðferðislegra spurninga í aðdraganda mótsns í vikunni.
Þannig er verðlaunaféð á boðsmóti LIV Golf í Lundúnum það hæsta í sögunni og frægustu kylfingarnir á mótinu taldir hafa fengið himinháar upphæðir bara fyrir að taka þátt.
Stærstu stjörnurnar á LIV-mótinu voru Phil Mickelson, Dustin Johnson, Lee Westwood, Sergio Garcia og Graeme McDowell. Þeir fjórir síðastnefndu höfðu allir hætt keppni á PGA-mótaröðinni til þess að geta keppt á LIV-mótaröðinni.
Það gerði Mickelsson ekki og sömu sögu er að segja af Poulter sem er allt annað en sáttur við ákvörðun forráðamanna PGA-mótaraðarinnar.
„Ég hef í gegnum tíðina spilað á fullt af alls konar mótum samhliða PGA-mótaröðinni og ég sé ekki að þessi viðburður (LIV-mótið) sé á nokkurn hátt frábrugðið þeim mótum.
Það er leitt að forráðamenn PGA-mótaraðarinnar séu ekki sama sinnis. Þessi ákvörðun á ekki við rök að styðjast og ég mun áfrýja henni," sagði Poulter í Lundúnum í kvöld.
Kylfingar hafa leitað til lögfræðinga
Svo virðist sem óumflýjanlegt sé að að lagaleg barátta milli LIV Golf og PGA-mótaraðarinnar sé fram undan en forsvarsmenn LIV Golf sögðu í tilkynningu í kvöld að þeir hefðu ekki sagt sitt síðast orð og myndu svara ákvörðun PGA með formlegum hætti á næstu dögum.
Graeme McDowell sagði í samtali við fjölmiðla í kvöld að hann hefði leitað lögfræðilegs álits síðustu daga og vikur og að hans mati væri verið að brjóta tveggja áratuga venju um að kylfingar geti tekið þátt á boðsmótum víðs vegar um heim.
Þannig telji McDowell og aðrir kylfingar sem hann hafi rætt við að þeim eigi að vera frjálst að gera sjálfstæða samninga um þátttöku á mótum utan PGA-mótararaðarinnar samhliða því að spila þar.