„Mannauðurinn er hjarta vinnustaðarins“ HR Monitor 7. júní 2022 09:11 „Borgarsögusafn Reykjavíkur er eitt stærsta safn á Íslandi og leiðandi á sínu sviði. Starfið mitt er rosalega fjölbreytt sem gerir það jafnframt áhugavert, krefjandi og ákaflega spennandi," segir Vala Magnúsdóttir. Vala Magnúsdóttir hefur starfað sem deildarstjóri reksturs og þjónustu hjá Borgarsögusafni í nær átta ár. „
Borgarsögusafn Reykjavíkur er eitt stærsta safn á Íslandi og leiðandi á sínu sviði. Starfið mitt er rosalega fjölbreytt sem gerir það jafnframt áhugavert, krefjandi og ákaflega spennandi. Það sem gefur mér mestu gleðina í mínu starfi er það tækifæri og sú gæfa að fá að starfa með frábæru, metnaðarfullu og skemmtilegu samstarfsfólki að öllum þeim ótrúlega fjölbreyttu verkefnum sem unnin eru á safninu og innan menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar.“ Vala Magnúsdóttir Vala er menntuð í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og stefnumótun en fór síðar aftur í nám í Hagnýtri menningarmiðlun og útskrifaðist sem menningarmiðlari. „Þá gat ég tengt saman menntun mína og starfa í dag í menningar- og ferðamálageiranum þar sem stærstu daglegu verkefnin mín eru fjármálstjórnun Borgarsögusafns Reykjavíkur, daglegur rekstur og þjónusta starfseininga og sýningarstaða stofnunarinnar, sem og mannauðsmál.“ Vala segir það mikilvægt að setja sér markmið til að ná árangri í lífi og starfi. „Að setja sér háleit og viðráðanleg markmið og hafa vilja til að gera vel, efla sig og aðra og eiga góð samskipti og ná árangri er vissulega sá ávinningur sem maður sækist eftir. Þá lærði ég möntru þegar ég var níu ára hjá fiðlukennara mínum sem kenndi mér að gefast ekki upp þótt nóturnar væru erfiðar, ‚Ég get, ég skal, ég vil og ég ætla.‘ Hana hef ég tekið með mér í gegnum líf, nám og starf og hún fleytt mér í gegnum ýmislegt yfir ævina.“ Jafnvægi milli vinnu og einkalífs mikilvægt Hvað gerir góða mannauðsstefnu? „Að mínu mati er stærsta áherslan á gott starfsumhverfi, góðan liðs- og starfsanda og samskipti starfsfólks á vinnustað. Þá er líka mikilvægt að það ríki gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs og að vinnustaðurinn sé með einhverju móti sveigjanlegur en innleiðing á styttingu vinnuvikunnar hefur verið mjög vel heppnuð og mjög góður árangur náðst í þessum efnum hjá stofnuninni.“ Vala telur mannauðinn einn stærsta þáttinn í starfsemi safnsins. „Mikilvægt er að hlúa vel að starfsfólki, því mannauðurinn er í raun hjarta vinnustaðarins. Það er stefna okkar að hafa hæft, áhugasamt, faglegt og metnaðarfullt starfsfólk í starfi sem sýnir frumkvæði og veitir góða þjónustu, sem og að stuðla að jafnræði, virðingu og góðum starfsanda á vinnustaðnum. Þá starfar Borgarsögusafn eftir mannauðsstefnu Reykjavíkurborgar.“ Mannauðsstefna Borgarsögusafns hefur skilað góðum árangri undanfarin ár. „Starfsmannavelta er mjög lítil og starfsánægja hefur verið góð. Árangursrík mannauðsstefna auðveldar starfsfólki að fylgjast með og öll mannauðstengd ferli verða meira gegnsæ. Starfsfólkið veit til hvers er ætlast af þeim og hvert þeirra hlutverk er innan stofnunarinnar. Þar með eykur það starfsánægju, samskiptaleiðir verða opnari og þægilegra er fyrir starfsfólk að koma sínu á framfæri.“ Gefa starfsfólki sterkari rödd með HR Monitor Vala segir frá því að áherslur í mannauðsmálum breyttust í kjölfar heimsfaraldursins og aukin þörf var á að starfsfólk væri með sterkari rödd. „Undangengin ár hefur Covid haft sín áhrif og margar áskoranir fylgt í kjölfar þess. Ég fann fyrir aukinni þörf starfsfólks að koma málefnum á framfæri við stjórnendur og var það í kjölfarið sem ég vildi gefa starfsfólki sterkari rödd með því að gera reglulegar mælingar með HR Monitor. Með því værum við með puttann á púlsinum og betur á tánum til að geta brugðist við hraðar ef eitthvað væri ábótavant í starfseminni.“ Borgarsögusafn hóf að nota HR Monitor árið 2020 og hafa mælingarnar nýst þeim mjög vel. „Ég sá mikil tækifæri í mælingunum fyrir okkur stjórnendur stofnunarinnar til að átta okkur betur á stöðu mála í starfseminni og innan vinnustaðarins og hafa þá gögn sem við getum byggt á í okkar ákvörðunartöku og stefnum í mannauðsmálum. Ýmislegt áhugavert og fróðlegt hefur komið út úr mælingum sem við höfum nýtt okkur í starfi eða brugðist við með einhverjum hætti og er það kosturinn við að vera með reglulegar mælingar að geta hlustað á starfsfólk sem og unnið áfram með góðar hugmyndir.“
Mannauðsmál Mest lesið Fær nokkuð jákvæð viðbrögð þegar hann vandar sig í eldhúsinu Atvinnulíf Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Viðskipti innlent Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Viðskipti innlent First Water í hýbýli Ísfélagsins á Þorlákshöfn Viðskipti innlent „Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Viðskipti innlent Hækka ekki verðtryggðu vextina Viðskipti innlent ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Neytendur Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Viðskipti innlent Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Samstarf Knattspyrnukappi á Skaganum ráðinn fjármálastjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reykskynjara vantar of víða – Eldvarnarátak stendur nú yfir Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Þola gluggarnir þínir íslenskt veðurfar? Greiðsluáskorun Eini sjö sæta rafbíllinn frá Peugot Snjallsímar tróna enn á toppnum í jólakönnun ELKO Frumsýning á Audi Q6 e-tron lúxussportjeppanum Stöðluðu húsin frá Límtré Vírneti hafa slegið í gegn Hvernig verður steypa græn? Land Cruiser 250: Frumsýning á laugardag Jólagjöf sem hefur slegið í gegn - Dineout gjafabréf Krafturinn keyrir alla skynsemi á kaf - Polestar 4 reynsluakstur Á Hrafnistu vinna öll að sama markmiði Slepptu biðröðinni og bókaðu dekkjaskiptin á nesdekk.is Hvað gefa vinnustaðir í jólagjöf? Fyrirtækjagjafir á Vísi Met mæting í Klinkuboð Ert þú á leið í framkvæmdir og veist ekki hvar þú átt að byrja? Októberfest í Bílheimum á laugardaginn Spennandi tækifæri í Mosfellsbæ Sjá meira