Innlent

Hótel taki her­bergi undir starfs­fólk vegna hús­næðis­skorts

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Vísir/Vilhelm

Húsnæðisvandi hefur hamlandi áhrif á ferðaþjónustuna hér á landi, sem er nú að rétta sig af eftir faraldurinn. Erlendu starfsfólki hefur fjölgað í greininni og það aukið eftirspurn eftir húsnæði. Talsmaður greinarinnar kallar eftir því að stjórnvöld láti verkin tala.

Skortur á húsnæði fyrir erlenda starfsmenn í ferðaþjónustu er farinn að standa þróun greinarinnar fyrir þrifum. Slíkur skortur, ofan á mönnunarvanda í greininni, veldur því að enn erfiðara er að fá fólk til starfa. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að vandinn sé nokkuð mikill. Lausnir sem ferðaþjónustan hafi sjálf ráðist í dugi skammt.

„Hótel hafa verið að reyna að taka herbergi undir starfsfólk, sem er auðvitað hvorki gott fyrir hótelin né starfsfólkið. Það eru ýmsar leiðir, það er verið að breyta húsnæði. Bílskúrum í íbúðarhúsnæði, það er verið að reyna að nýta það húsnæði sem til er á margvíslegan hátt. Hafa fleiri inni í hverri íbúð, og svo framvegis, sem eru allt saman vondar lausnir,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.

Lausnir í dag skili sér eftir ár

Hann fagnar því að starfshópur á vegum innviðaráðherra hafi skilað inn tillögum um hvernig tekið verði á húsnæðisvandanum, en segir að hugmyndunum verði að fylgja eftir.

„Nú kannski kemur í ljós hversu fljót við getum verið. Því við vitum það að frá því ákvarðanir eru teknar og þangað til húsnæðið er í raun og veru komið á markað og farið að vinna fyrir okkur, það er alveg eitt til tvö ár sem það tekur. Þannig að þetta þarf að fara að gerast núna ef við ætlum að sjá breytingu á næstu árum.“

Til að geta sinnt allri þjónustu sem ferðamannastraumurinn kalli á þurfi á bilinu sjö til níu þúsund manns erlendis frá.

„Eins og staðan er núna þá vantar einhvern töluverðan hluta af því.“

Meðal hugmynda sé að ferðaþjónustufyrirtæki ráði fólk frá Úkraínu í vinnu, það sé þó vandkvæðum bundið.

„Bæði varðandi samsetningu hópsins og að tengja þau við störf sem eru í boði, tungumálavandi og ýmislegt sem þarf að vinna í kringum. Þetta er vissulega einn möguleikinn, og bara um að gera að hvetja fyrirtækin til þess að athuga hvort þetta er möguleiki, og hafa samband við Vinnumálastofnun.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×