Stuðningsmenn ruddust inn á völlinn og köstuðu blysum í átt að leikmönnum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 29. maí 2022 23:31 Stuðningsmenn Saint-Etienne hafa komið sér í vandræði oftar en einu sinni á tímabilinu. Marcio Machado/Eurasia Sport Images/Getty Images Stuðningsmenn Saint-Etienne brugðust hinir verstu við þegar liðið féll úr frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir tap í vítaspyrnukeppni gegn Auxerre í úrslitum umspilsins í dag.
Eftir 1-1 jafntefli í fyrri leik liðanna og annað 1-1 jafntefli í síðari leiknum þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni til að skera úr um hvort Saint-Etienne eða Auxerre fengi sæti í frönsku úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Auxerre vann vítaspyrnukeppnina 5-4 og Saint-Etienne mun því ekki leika í deild þeirra bestu í fyrsta skipti í 18 ár. Um leið og sigur Auxerre var í höfn ruddust fleiri hundruð stuðningsmanna Saint-Etienne inn á völlinn. Margir þeirra köstuðu blysum í átt að aðalstúku vallarins og aðrir tóku upp á því að kasta blysum í átt að leikmannagöngunum. Lögrelumenn vopnaðir kylfum og skjöldum beittu táragasi til að dreifa mannfjöldanum og leikmenn flúðu inn í klefa eins fljótt og þeir gátu. st etienne just lost on penalties to auxerre and have been relegated so the st etienne fans invaded the pitc and attacked players and the police pic.twitter.com/gaKgxwNHYI— Football Fights (@footbalIfights) May 29, 2022 Þetta er ekki í fyrsta skipti á tímabilinu sem stuðningsmenn Saint-Etienne eru til vandræða. Félagið hefur fengið refsingu nokkrum sinnum á tímabilinu og einn hluti stúkunnar var lokaður í dag sökum óláta stuðningsmanna gegn Monaco í seinasta mánuði.
Franski boltinn Mest lesið Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Fótbolti „Hann er að hringja til að segjast ætla að drepa mig“ Körfubolti „Hvar í fjáranum er þessi Íslendingur?“ Fótbolti „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Enski boltinn Hljóp maraþonhlaup á hverjum degi í heilt ár Sport Enn óvíst að stuðningsmenn Íslands fái HM-treyjur: „Afskaplega leitt“ Handbolti HM úr sögunni hjá Arnari Frey Handbolti Leik lokið: Stjarnan-KR 94-86 | Stjörnumenn tóku aftur til sín toppsætið Körfubolti „Ég var að sinna hlutum sem eru mikilvægari en körfubolti“ Körfubolti „Það mikilvægasta sem við eigum“ Handbolti Fleiri fréttir Schick stjarnan í sterkum sigri Júlíus keyptur á meira eina milljón evra Hilmir Rafn gerði fjögurra ára samning við norsku Víkingana Freyr sagður vera með samningstilboð frá Brann Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Aldís Ylfa orðin landsliðsþjálfari fyrir þrítugsafmælið Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Í sex leikja bann fyrir að hrækja á mótherja MLS baðst afsökunar á tilkynningu um rangan Japana Isak bestur í desember „Hvar í fjáranum er þessi Íslendingur?“ „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Diallo verðlaunaður með nýjum samningi Moyes hefur rætt við Everton Þjálfari sló niður ungan línuvörð en sleppur við fangelsi Everton endaði furðulegan dag á því að fara áfram í bikarnum Fá draumaúrslitaleik á milli Real Madrid og Barcelona Cristiano Ronaldo skoraði á 24. árinu í röð Marta spilar fram á fimmtugsaldurinn Starfsviðtöl að baki og nú þarf að ákveða sig Farnir að orða Mourinho við Everton starfið Everton rak Sean Dyche aðeins nokkrum klukkutímum fyrir leik Liverpool vill fá Kimmich Rooney bað Coleen á bensínstöð Högmo kom ekki í viðtal hjá KSÍ Alex Þór aftur í Stjörnuna „Mikilvægasta ráðning í langan tíma“ Reyna að lokka Arnór aftur til Svíþjóðar Arnar fundar með KSÍ Freyr til Noregs í viðræður og Högmo tekinn við Molde Sjá meira