Innlent

Segir gjör­sam­lega ó­for­svaran­legt að vísa fötluðum flótta­manni úr landi

Árni Sæberg skrifar
Árni Múli Jónasson er framkvæmdastjóri Þroskahjálpar.
Árni Múli Jónasson er framkvæmdastjóri Þroskahjálpar. Stöð 2/Bjarni

Framkvæmdastjóri Þroskahjálpar segir það gjörsamlega óforsvaranlegt að yfirvöld ætli að senda írakskan flóttamann, sem notast við hjólastól, til Grikklands. Fjölskylda mannsins segir yfirvöld munu senda manninn út í opinn dauðann með því.

Til stendur að vísa írakskri fjölskyldu úr landi og til Grikklands. Einn fjölskyldumeðlimanna notast við hjólastól og telur fjölskyldan að hann muni einfaldlega deyja verði hann sendur til Grikklands. Þar muni hann ekki fá þá nauðsynlegu læknisþjónustu sem hann nýtur hér á landi.

„Okkur finnst þetta gjörsamlega óforsvaranlegt. Allir sem hafa kynnt sér aðstæður í Grikklandi vita að þær eru skelfilega erfiðar fyrir flóttafólk almennt og alls kyns mismunun og alls kyns óyfirstíganlegar hindranir sem mæta fötluðu fólki og fólki almennt þar,“ segir Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, í samtali við fréttastofu.

Rætt var við Árna Múla og fjölskyldu mannsins í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld:

Árni Múli segir að hverjum manni eigi að vera ljóst að erfiðara er fyrir fatlaða flóttamenn en aðra að vera sendir til Grikklands.

Óttast að fleiri séu í sömu stöðu

Árni Múli segir Þroskahjálp óttast að fleira fatlað flóttafólk vera í þeirri erfiðu stöðu að til standi að senda það úr landi. Stjórnvöld hafi ekki svarað fyrirspurn samtakanna um það hvort sú sé raunin.

„Eftir samskipti okkar við útlendingayfirvöld í þessum málum þá er ekki að ástæðulausu að vi höfum áhyggjur af því. Þau hafa að okkar mati ekki sinnt skyldum sínum gagnvart þessum berskjaldaða hópi, alls ekki nægilega, og sett sig inn í réttindi þess,“ segir hann.

Ómannúðlegt að senda fatlað fólk í þessar aðstæður

Þá segir Árni Múli að það sé í meira lagi umdeilanlegt hvort það standist skyldur íslenkskra stjórnvalda hvað varðar mannréttindi fatlaðs fólks, sem eru sérstaklega áréttuð í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og Ísland hefur undirgengist, að vísa fötluðu flóttafólki úr landi.

„Okkur finnst, hvernig sem það veltur og ég er nú sannfærður um að þetta eru mannréttindabrot, að maður geti varla hugsað sér ómannúðlegri meðferð á fötluðu fólki heldur en að senda það í þesssar aðstæður,“ segir Árni Múli að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×