Heimir: Allt var eins og það átti að vera í kvöld Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. maí 2022 21:53 Strákarnir hans Heimis Guðjónssonar hafa unnið fjóra af fyrstu fimm leikjum sínum á tímabilinu. vísir/hulda margrét Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, segir að það hafi verið dýrmætt að skora skömmu fyrir hálfleik í leiknum gegn ÍA í kvöld. Valsmenn unnu á endanum öruggan 4-0 sigur. „
Það var gríðarlega mikilvægt. Við vissum að Skagamenn yrðu vel skipulagðir, spiluðu sterkan varnarleik og myndu beita skyndisóknum. Þeir fengu eitt gott færi eftir skyndisókn en eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn náðum við betri tökum á þessu, skoruðum gott mark og svo spiluðum við vel í seinni hálfleik,“ sagði Heimir við Vísi í leikslok. „Við sköpuðum góð færi í seinni hálfleik og skoruðum góð mörk. Ég var ánægður með flotið á boltanum og við fórum í þau svæði sem við vildum fara í. Svo var jákvætt að fremstu mennirnir okkar skoruðu. Allt var eins og það átti að vera í kvöld.“ Valsmenn spiluðu mjög vel í seinni hálfleik og líklega sinn besta bolta á tímabilinu hingað til að mati Heimis. „Ég held það, allavega hvað varðar sóknarleikinn er þetta það besta sem við höfum gert. En við þurfum að halda áfram. Einn leikur í einu,“ sagði Heimir. Félagaskiptaglugganum verður lokað á miðnætti. Að sögn Heimis verða engar breytingar á leikmannahópi Vals og þá staðfesti hann að Sigurður Egill Lárusson yrði áfram hjá félaginu.
Besta deild karla Valur Mest lesið Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur Sport Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Enski boltinn Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Handbolti Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Enski boltinn „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Körfubolti Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Fótbolti Fleiri fréttir Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Hermann Hreiðars tekur við HK Sjá meira