Eins og í ástarsögu eftir Barböru Cartland Elísabet Hanna skrifar 11. maí 2022 15:30 Eins og í ástarsögu eftir Barböru Cartland. Aðsend. Tónlistarmaðurinn Höskuldur Ólafsson, betur þekktur sem Hössi í Quarashi er í hljómsveitinni Kig & Husk ásamt Frank Hall en þeir eru í óðaönn að safna fyrir vínyl útgáfu plötunnar Kill The Moon. Þeim finnst vínyllinn tengja tónlist og myndlist á einstakan hátt og vilja halda í þá athöfn.
Blaðamaður hafði samband við Hössa til þess að heyra af söfnuninni, Quarashi tímunum og skoðun hans á Travis Baker og Kourtney Kardashian. Hvernig varð hljómsveitin KIG & HUSKtil?Eins og í ástarsögu eftir Barböru Cartland. Ég kom fátækur heim úr námi og Frank sem hafði verið að semja músík fyrir kvikmyndir og leikhús, bauð mér húsaskjól í skiptum fyrir aðstoð við að klára lög sem höfðu gengið af. „Í dag er ég hamingjusamlega giftur hestasveininum, eða bakaranum.“ Við Frank vorum saman í Ske áður en ég hélt út til náms og gáfum út eina plötu, Love For You All. Þar áður spiluðum við saman í Stórsveit Tónlistarskóla Seltjarnarness, ég tólf ára á þriðja trompet með bólugrafið enni og hann með hárið vatnsgreitt aftur á rafmagnsgítar. „Þannig að ... we go way back.“ Hvernig og hvenær kom hugmyndin að söfnuninni. Það kom aldrei til greina að gefa eingöngu út stafrænt og hvorugur okkar á hlutabréf í Íslandsbanka þannig að við ákváðum við að reyna þessa leið. Við ólumst báðir upp við að hanga í plötubúðum miðbæjarins og fletta í plöturekkunum þar til maður var beðinn um að kaupa eitthvað eða vera úti. „Ef maður átti pening keypti maður kannski smáskífu á 500 kall en annars fór maður bara yfir í næstu hljóðfærabúð og glamraði á gítara þar til manni var vísað út þar. Og nýr hringur hófst.“ Fyrir marga snýst útgáfa á vínyl um sándið en í mínum huga er þetta fyrst og fremst athöfnin að halda á albúmi og rýna í myndmálið á meðan maður hlustar á tónlistina. Vínyllinn tengir tónlist og myndlist á einstakan hátt. Eitthvað sem stafræn útgáfa gerir ekki eða gerir ekki nægilega vel. View this post on Instagram A post shared by Kig & Husk (@kigandhusk) Hver er mesti munurinn á þessu samstarfi og Quarashi?Quarashi var gjörningalistahópur sem mætti heim til þín og rústaði íbúðinni þinni, þér og þínum vinum til skemmtunar og sendi svo reikning daginn eftir. „Kig & Husk er líkara vafasamri innsetningu eða skúlptúrgarði sem kemur ekki upp á Google Maps.“ Hvað stendur upp úr frá Quarashi tímabilinu?Tónleikaferðirnar. Flestir kynnast landinu í útilegum eða hringferðum að sumri til en við keyrðum eða flugum yfir Ísland vetur eftir vetur til að spila á menntaskólaböllum og tónleikum og urðum oftar en ekki snjótepptir í marga daga á hverjum stað. „Ég kunni ekki að meta það þá en ég geri það núna.“ Seinna ferðuðumst við um N-Ameríku þvera og endilanga sem var ólýsanleg upplifun. Svo til Japans og Ástralíu og að lokum um Evrópu. Með Quarashi fór ég hring um jörðina. Og fékk greitt fyrir. Hvaðan sækir þú innblástur?Í aðra tónlist. Aðra listamenn. Mjög oft kvikmyndir eða bækur sem ég er að lesa en oftast er þetta samtal milli mín og Frank. Hann er hæfileikaríkasti tónlistarmaður sem ég hef nokkurn tímann kynnst þannig að oftast er ég bara að reyna halda í við hann. View this post on Instagram A post shared by Kig & Husk (@kigandhusk) Hvað er framundan hjá KIG & HUSK?Vonandi náum við að fjármagna vínyl-útgáfuna og fagna með tónleikum. Við höfum aldrei spilað „live“ þannig að við þurfum að finna út úr því öllu. Svo er ég með nokkur lög hálfkláruð í hausnum og Frank ábyggilega með heilan helling. „Önnur plata á næsta ári væri blautur draumur.“ Hvað er framundan hjá þér?Nýr Kardashians á morgun. Sá Blink-182 á tónleikum í New York þegar við vorum á túr og hef haft illan bifur á Travis síðan. Treysti honum ekki fyrir horn.
Tónlist Tengdar fréttir Hössi úr Quarashi með nýtt band So Long Holly er fyrsta smáskífa af væntanlegri fyrstu breiðskífu Kig & Husk sem er skipuð Frank Hall og Höskuldi Ólafssyni. Frank er þekktur fyrir að hafa verið í hljómsveitinni Ske og Höskuldur var í Quarashi. 4. júní 2021 10:31 Eðlilegt að tjilla með Eminem Quarashi gerir upp ferilinn. 31. maí 2014 10:30 Gamalt lag Quarashi grafið upp „Þetta er týpískt Quarashi-lag frá þessum tíma,“ segir Sölvi Blöndal, forsprakki hljómsveitarinnar Quarashi. 27. september 2011 16:00 Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist „Þetta eru allt krakkar í íþróttum“ Lífið samstarf Fundu ástina á Domino's Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Hössi úr Quarashi með nýtt band So Long Holly er fyrsta smáskífa af væntanlegri fyrstu breiðskífu Kig & Husk sem er skipuð Frank Hall og Höskuldi Ólafssyni. Frank er þekktur fyrir að hafa verið í hljómsveitinni Ske og Höskuldur var í Quarashi. 4. júní 2021 10:31
Gamalt lag Quarashi grafið upp „Þetta er týpískt Quarashi-lag frá þessum tíma,“ segir Sölvi Blöndal, forsprakki hljómsveitarinnar Quarashi. 27. september 2011 16:00
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“