Innlent

Úr tvö hundruð starfsmönnum í þrjá

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Stór hluti Íslendinga hefur beðið í röð eftir sýnatöku við Suðurlandsbraut. Nú virðist sá tími að baki - í bili að minnsta kosti.
Stór hluti Íslendinga hefur beðið í röð eftir sýnatöku við Suðurlandsbraut. Nú virðist sá tími að baki - í bili að minnsta kosti. vísir/Vilhelm

Tímamót urðu í faraldrinum í dag þegar sýnatökur heilsugæslunnar voru fluttar frá Suðurlandsbraut en starfsemin verður opnuð í Mjóddinni á morgun.

Til marks um miklar breytingar munu einungis þrír starfsmenn sinna sýnatökum á nýjum stað en þegar mest lét störfuðu tvö hundruð á Suðurlandsbraut.

Marta María Arnarsdóttir, verkefnastjóri hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir húsnæðið við Suðurlandsbraut einfaldlega orðið of stórt þar sem verulega hefur dregið úr komum í sýnatöku.

„Þegar mest var hjá okkur vorum við með opið í tólf tíma. Sérstaklega þegar hraðprófin stóðu sem hæst og allir þurftu að sækja sér vottorð fyrir viðburði og slíkt. Þá voru mörg þúsund manns að koma til okkar á hverjum degi. Núna erum við að taka um hundrað sýnatökur á dag sem okkur finnst bara ekki neitt.“

Marta María Arnarsdóttir, verkefnastjóri hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.vísir/Einar

Veistu hvað þið hafið tekið mörg sýni á Suðurlandsbraut?

„Já, þau hafa verið yfir milljón. Eða um ein milljón og eitt hundrað og fimmtíu þúsund,“ segir Marta.

Hún segir blendnar tilfinningar fylgja flutningunum.

„Við erum nánast búin að búa hérna, starfsmennirnir sem hafa sinnt sýnatökum, en við fögnum þessu að sjálfsögðu. Það er mjög gott að faraldurinn sé á niðurleið og við vonum að þetta haldist þannig.“

Afgangur af bóluefni í kössum.vísir/Vilhelm

Það er mikið verk að pakka öllu niður en Marta segir heilsugæsluna þó tilbúna fyrir aðra bylgju - sem ríði þó vonandi ekki yfir þjóðina.

„Við erum búin að pakka öllu saman þannig að við getum riggað upp stórum sýnatökustað ef þörf er á. Ef það kemur ný bylgja eða nýr heimsfaraldur erum við í stakk búin til þess að skella því í gang með dagsfyrirvara. Þannig við erum að pakka öllu mjög skipulega niður.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×