Innlent

Tekið á móti allt að 140 úkraínskum flótta­mönnum úr við­kvæmum hópum

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra fól flóttamannanefnd í síðasta mánuði að útfæra tillögur að móttöku flóttafólks í sérstaklega viðkvæmri stöðu.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra fól flóttamannanefnd í síðasta mánuði að útfæra tillögur að móttöku flóttafólks í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Vísir/Vilhelm

Samþykkt var á ríkisstjórnarfundi í morgun að fallast á útfærslu flóttamannanefndar um móttöku viðkvæmra hópa flóttafólks frá Úkraínu. Tekið verður á móti allt að 140 manns úr þeim hópum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu. Þar er rakið að seint í síðasta mánuði hafi ríkisstjórnin samþykkt tillögu Guðmundar Inga Guðbrandssonar félagsmálaráðherra um að fela flóttamannanefnd að útfæra tillögur um sérstaka móttöku viðkvæmra hópa flóttafólks frá Úkraínu.

Samkvæmt tilkynningunni verða fyrstu viðbrögð og aðgerðir stjórnvalda, að tillögu flóttamannanefndar, eftirfarandi:

„Tekið verður á móti allt að 100 manns sem hafa leitað til Moldóvu frá Úkraínu. Landið er eitt fátækasta ríki Evrópu en alls hafa um 450.000 manns leitað yfir landamærin og stendur Moldóva frammi fyrir stórum áskorunum til að tryggja öryggi og húsaskjól fyrir þessa einstaklinga.

Tekið verður á móti fimm til sjö fötluðum börnum og fjölskyldum þeirra, en ákall hefur komið frá pólskum stjórnvöldum um að taka á móti þessum einstaklingum. Mikilvægt er að halda vel utan um þennan hóp sem þarf mikinn stuðning og þjónustu. Gert er ráð fyrir að heildarfjöldi fatlaðra barna og fjölskyldna þeirra sé um 15-20 manns.

Íslensk stjórnvöld munu taka á móti sjúkum og særðum og nánum fjölskyldumeðlimum þeirra. Sendar eru út beiðnir vegna móttöku einstaklinga sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda úr evrópskum gagnagrunni. Tilgreint er í hvert sinn hvers konar heilbrigðisþjónustu er þörf á og með því móti er hægt að taka á móti einstaklingum í samræmi við getu heilbrigðiskerfisins hverju sinni. Fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins ásamt fulltrúa Almannavarna munu vakta beiðnir og meta getu heilbrigðiskerfisins til að sinna ákalli hverju sinni.“

Þá segir í tilkynningunni að rúmlega 820 manns frá Úkraínu hafi sótt um vernd hér á landi og viðbúið sé að umsóknum muni fjölga á næstunni. Með ákvörðun sinni í dag muni ríkisstjórnin taka sérstaklega á móti flóttafólki úr viðkvæmum hópum. Heildarfjöldi þeirra muni nema um 120 til 140 manns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×