Lífið

„Gjammaði í eyrað“ á Ty­son sem fékk nóg og lét hnefana tala

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Mike Tyson er af mörgum talinn einn besti boxari allra tíma.
Mike Tyson er af mörgum talinn einn besti boxari allra tíma. Stephen Flood/The Express-Times via AP

Mike Tyson, sem af mörgum er álitinn einn besti boxari allra tíma, varð uppvís að því að kýla ítrekað farþega í flugvél sem var í þann mund að leggja af stað frá San Francisco til Flórída í vikunni. Maðurinn ku hafa verið afar ölvaður og er sagður hafa áreitt Tyson ítrekað áður en barsmíðarnar hófust.

Frá þessu greinir slúðurmiðillinn TMZ, sem er fremstur meðal jafningja þegar kemur að fréttum af lífi hinna ríku og frægu í Hollywood.

TMZ hefur eftir farþega í vélinni að meðan fólk kom sér fyrir í sætum sínum hafi Tyson einfaldlega setið í sæti sínu, pollrólegur. Maðurinn sem síðar hafi fengið að finna fyrir höggþunga hnefaleikakappans hafi fengið mynd af sér með Tyson, og síðan ítrekað reynt að halda uppi samræðum við hann. Maðurinn sem um ræðir sat í sætinu fyrir framan Tyson.

Tyson á að endingu að hafa fengið nóg af manninum, og beðið hann um að slaka aðeins á. Það hafi maðurinn ekki gert og haldið áfram að „gjamma í eyrað“ á Tyson, sem þá hafi verið nóg boðið. Í kjölfarið hafi Tyson hallað sér yfir sæti mannsins og byrjað að kýla hann ítrekað í andlitið.

Lögregla skoðar myndband af árásinni

Myndband sem náðist af atvikinu er nú í dreifingu á netinu. Það má sjá hér að ofan. Þar sést hvar farþeginn sem varð fyrir barðinu á „Iron Mike,“ eða „Mikki úr járni,“ eins og það myndi útlistast á íslensku, er blóðugur á enninu. Tyson er sagður hafa gengið út úr flugvélinni eftir árásina. Maðurinn sem hann réðst á fékk aðhlynningu lækna og er síðan sagður hafa haft samband við lögreglu.

TMZ hefur það eftir lögreglu í San Francisco að tveir einstaklingar sem taldir eru tengjast málinu hafi verið handteknir. Þó hafi sá sem ráðist var á gefið „lágmarksvitnisburð um málið og neitað að vinna frekar með lögreglu við rannsókn málsins.“

Lögregla segir einnig að myndbandið af árásinni sé nú til skoðunar hjá lögreglustjóranum í San Mateo-sýslu í Kaliforníu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.