Lífið

Liza Minnelli upplifði eins og skemmt hafi verið fyrir sér á Óskarnum

Elísabet Hanna skrifar
Lady Gaga og Liza Minnelli komu saman fram á Óskarnum.
Lady Gaga og Liza Minnelli komu saman fram á Óskarnum. Getty/ Neilson Barnard.

Grammy verðlaunahafinn Michael Feinstein sem er vinur og samstarfsmaður Lizu Minnelli sagði í viðtali í gær að henni hafi fundist vera eyðilagt fyrir sér á Óskarnum í síðasta mánuði þegar hún kom fram með Lady Gaga.

Áhorfendur risu úr sætum

Þær stöllur komu saman fram á sviðið til þess að kynna bestu mynd hátíðarinnar sem var myndin CODA. Þegar þær komu á sviðið brugðust áhorfendur við með því að rísa úr sætum og klappa fyrir henni. 

Nú hefur samstarfsmaður og vinur hennar greint frá því að Cabaret stjarnan hafi verið afar vonsvikin með þessa lífsreynslu.

„Það var eyðilagt fyrir henni“ sagði söngvarinn Michael Feinstein í viðtalinu en hann og Liza hafa unnið mikið saman í gegnum tíðina og gáfu síðast út efni saman í mars.  

Samþykkti ekki að vera í hjólastól

„Það er hræðilegt orð að nota en hún samþykkti bara að koma fram á Óskarnum ef hún mætti vera í leikstjórastól því hún var með bakvandamál,“ sagði hann og segir hana hafa sagt: „Ég vil ekki að fólk sjái mig haltra þarna út“ - „Þið vitið að ég vil lýta vel út, ég vil ekki að fólk hafi áhyggjur af mér“. 

Plön kvöldsins breyttust þó á síðustu stundu og segir Feinstein það að hluta til hafa verið vegna atviksins þar sem Will Smith sló Chris Rock. Liza fékk þær upplýsingar nokkrum mínútum áður en hún átti að stíga á svið að hún yrði í hjólastól í stað leikstjórastóls. Hann segir hana hafa verið stressaða í aðstæðunum og það hafi látið hana líta út fyrir að vera ekki með allt á hreinu. 

„Geturðu ímyndað þér að að vera skyndilega þvinguð til að láta milljón manns sjá þig á veg sem þú vilt ekki sjást? Það er það sem gerðist fyrir hana,“

bætir hann við. Í síðasta mánuði gaf fyrrum kynningafulltrúi Lisu það út að Lady Gaga hafi sérstaklega óskað eftir því að kynna með Lisu. Þær hafa átt vinalegt samband síðasta áratuginn eða svo og lítur Lady Gaga upp til hennar. 


Tengdar fréttir

Óskarsvaktin fer yfir hátíðina og eftirmála hennar

Óskarvakt Vísis í ár skipuðu þær Dóra Júlía og Elísabet Hanna. Þær hafa nú tekið saman stærstu mál Óskarsins 2022 og sett þau í svokallaðan uppgjörsþátt, um hátíðina og allt sem henni hefur fylgt. Kjólarnir, tískan, kynnarnir, atvikið sem allir eru að tala um og eftirmálar þess.

Óskarsvaktin 2022

Óskarinn fer fram í Dolby leikhúsinu í kvöld þar sem allar stærstu stjörnurnar mæta og vonast eftir gullstyttunni. Dóra Júlía og Elísabet Hanna ætla að halda uppi vaktinni í nótt og fara með lesendum í gegnum rauða dregilinn og hátíðina. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.