Frábær fyrri hálfleikur skilaði Liverpool í úrslit Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 16. apríl 2022 16:29 Sadio Mané skoraði tvö mörk fyrir Liverpool í dag. James Gill - Danehouse/Getty Images Liverpool er á leið í úrslitaleik FA-bikarsins eftir 3-2 sigur gegn Englandsmeisturum Manchester City á Wembley í dag, en það var helst frábær fyrri hálfleikur Rauða hersins sem skilaði sigrinum. Liverpool tók forystuna snemma leiks þegar Ibrahima Konate reis manna hæst í vítateignum og stangaði hornspyrnu Andy Robertson í netið á níundu mínútu. Staðan var svo orðin 2-0 átta mínútum síðar þegar Zack Steffen, markvörður Manchester City, reyndi að herma eftir kollega sínum Ederson og ætlaði að leika á Sadio Mané. Sá síðarnefndi þakkaði pent fyrir sig og tvöfaldaði forystu Liverpool. Mané 𝙥𝙤𝙪𝙣𝙘𝙚𝙨 ⚡️#EmiratesFACup pic.twitter.com/IKGpGAApkn— Emirates FA Cup (@EmiratesFACup) April 16, 2022 Mané var svo aftur á ferðinni á seinustu mínútu fyrri hálfleiks þegar hann tók boltann á lofti og þrumaði boltanum í netið eftir sendingu frá Thiago Alcantara og staðan því 3-0 þegar flautað var til hálfleiks. Englandsmeistararnir þurftu mark snemma í síðari hálfleik til að eiga möguleika gegn Liverpool og þeir fengu það svo sannarlega. Hundrað milljón punda maðurinn Jack Grealish setti boltann þá í netið eftir flottan undirbúning frá Gabriel Jesús. The chop ✂️The finish 👏@gabrieljesus9 🤝 @JackGrealish#EmiratesFACup pic.twitter.com/GiL6SHU4j8— Emirates FA Cup (@EmiratesFACup) April 16, 2022 Englandsmeistararnir reyndu hvað þeir gátu til að minnka muninn enn frekar og það tókst loksins þegar komið var tæpa mínútu fram yfir venjulegan leiktíma. Bernardo Silva var þá fyrstur að átta sig eftir að Alisson varði frá Riyad Mahrez og setti boltann í autt netið. Liðsmenn City fengu svo sín færi til að jafna metin í uppbótartímanum, en allt kom fyrir ekki og leikmenn Liverpool fögnuðu 3-2 sigri. Liverpool er því á leið í úrslitaleik FA-bikarsins í fyrsta sinn undir stjórn Jürgens Klopp, en Englandsmeistararnir sitja eftir með sárt ennið. Liverpool mætir annað hvort Chelsea eða Crystal Palace í úrslitum FA-bikarsins, en Lundúnaliðin mætast á morgun. Úrslitaleikurinn sjálfur fer svo fram laugardaginn 14. maí á Wembley. Enska bikarkeppnin, FA Cup, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. FA Cup er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Fótbolti Enski boltinn
Enska bikarkeppnin, FA Cup, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. FA Cup er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti