Ármann einum sigri frá Subway-deildinni Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 11. apríl 2022 21:02 Ármann vann dramatískan sigur í kvöld og er nú aðeins einum sigri frá sæti í Subway-deild kvenna. Mynd/Karfan.is Ármann er einum sigri frá Subway-deild kvenna eftir eins stigs sigur gegn ÍR í kvöld. Lokatölur 88-87, og Ármann leiðir nú einvígið 2-1.
Heimakonur í Ármanni byrjuðu betur og náðu fljótt átta stiga forskoti. Gestirnir í ÍR náðu að snúa leiknum sér í hag, en góður kafli Ármanns undir lok fyrsta leikhluta sá til þess að heimakonur leiddu með níu stigum að honum loknum. Ármann hélt forskoti sínu lengst af í öðrum leikhluta. ÍR-ingar gáfust þó ekki upp og minnkuðu muninn í þrjú stig áður en flautað var til hálfleiks og staðan þegar gengið var til búningsherbergja var 50-47, Ármanni í vil. Þriðji leikhluti var svo gríðarlega kaflaskiptur. Heimakonur byrjuðu af miklum krafti og náðu mest 19 stiga forskoti, en gestirnir minnkuðu muninn á ný og þegar komið var að lokaleikhlutanum var staðan 76-70, Ármanni í vil. Jafnræði var með liðunum í lokaleikhlutanum og heimakonur í Ármanni áttu erfitt með að hrista gestina af sér. ÍR-ingar náðu að jafna metin undir lok leiksins, í stöðunni 87-87 en nær komust þær ekki. Jónína Þórdís Karlsdóttir setti niður eitt af tveim vítum á lokasekúndunum og niðurstaðan varð eins stigs sigur Ármanns, 88-87. Schekinah Sandja Bimpa var langstigahæst í liði Ármanns með 39 stig, en hún tók einnig níu fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Í liði ÍR var Gladiana Aidaly Jimenez atkvæðamest með 27 stig, ellefu fráköst og fimm stoðsendingar.
Körfubolti Ármann ÍR Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Fleiri fréttir „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Sjá meira