Hér erum við að tala um Karl Jóhann Jónsson, myndlistarmanni í Kópavogi. Hann er Reykvíkingur en á mikið af skyldfólki í Vestmannaeyjum og á Suðurlandi og var meðal annars í sveit á bænum Grafarbakka við Flúðir.
Myndirnar hans eru ótrúlega flottar og vekja alltaf mikla athygli, sjáið þið til dæmis þennan flotta hrút, sem hann var að mála og myndin af Emil í Kattholti og svo eru það allar andlitsmyndirnar af honum sjálfum og fjölskyldunni, ásamt öðru fólki.
„Ég hef í raun og veru alltaf málað og teiknað frá því að ég man eftir mér en ég fór í myndlistanámið eftir stúdentspróf, var í Myndlistar- og handíðaskólanum. Ég vinn inn í seríur, ég er alltaf að byrja á nýjum seríum, sennilega vegna þess að ég er með svo mikinn athyglisbrest, þá hoppa ég oft yfir í eitthvað annað og byrja aftur á nýrri seríu,“ segir Karl Jóhann og hlær.

Emil í Kattholti er í miklu uppáhaldi hjá Karli.
„Já, ég samsama mig mjög mikið við hann í æsku, var með hvítt hár eins og hann en ekki jafn óþekkur.“

Og svo allar dýramyndirnar þínar, þær eru mjög fallegar.
„Já, þakka þér fyrir. Dýrin eru eitthvað sem ég hef alltaf haldið mikið upp á. Hrúturinn var allavega málaður fyrir góðan Framsóknarmann. Ég hef málað nokkrar hrútamyndir og yfirleitt mála ég þá eftir myndum því þeir vilja aldrei vera kyrrir þegar ég reyni að mála þá,“ bætir Karl við hlæjandi.

Karl hefur líka mikla ánægju að mála myndir af körlum með skegg.
„Það er einhver svona della líklega frá því að pabbi gaf mér bók með málverkum eftir Renbrand þegar ég var bara krakki og ég hreyfst alltaf af þessu klassíska þema,“Men við berad.“

Karl Jóhann er í fullu starfi í Hörðuvallaskóla, sem myndlistarkennari, syngur í Karlakór Reykjavíkur og málar og málar fyrir fólk óski það eftir mynd frá honum. Þá er bara að setja sig í samband við hann.
