Tekur við starfi markaðsstjóra Kaptio Atli Ísleifsson skrifar 30. mars 2022 09:38 Alondra Silva Munoz. aðsend Hugbúnaðarfyrirtækið Kaptio hefur ráðið Alondru Silva Munoz sem markaðsstjóra fyrirtækisins. Hún mun stýra teymi innan Kaptio sem hafi það að markmiði að auka sýnileika og vöxt félagsins.
Í tilkynningu segir að Alondra hafi umtalsverða reynslu af stjórnun, alþjóðaviðskiptum og markaðsmálum. Hún hafi sinnt samskiptum og markaðsmálum í um áratug, í fimm löndum og fjölmörgum atvinnugreinum, og hafi starfað hér á landi í nokkur ár. „Árin 2017-2020 stýrði Alondra markaðs- og sölumálum hjá ferðaþjónustufyrirtækinu Troll Expeditions, á miklu vaxtarskeiði fyrirtækisins. Árið 2020 tók hún við starfi sem ráðgjafi og síðar sem markaðsstjóri hjá Beedle, sem er íslenskt sprotafyrirtæki í tæknigeiranum. Hjá Beedle bar Alondra meðal annars ábyrgð á innleiðingu á nýrri markaðsstefnu félagsins á alþjóðamörkuðum, og vann m.a. í samstarfi með Microsoft, en viðskiptavinum félagsins fjölgaði mikið á þessu tímabili. Alondra er með B.A. gráðu í málvísindum frá Universidad de Santiago de Chile þar sem hún stundaði jafnframt meistaranám í sama fagi. Þá er hún með M.A gráðu í Ameríkufræðum frá Háskóla Íslands,“ segir í tilkynningunni. Kaptio er alþjóðlegt hugbúnaðarfyrirtæki sem býður bókunar- og viðskiptatengslahugbúnað fyrir ferðaþjónustufyrirtæki. Það var stofnað árið 2012 og er með höfuðstöðvar í Reykjavík en starfsemi í Bretlandi og Kanada. Alls starfa um fimmtíu manns hjá félaginu og eru helstu hluthafar þess Frumtak og Nýsköpunarsjóður ásamt stofnendum.
Vistaskipti Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Sjá meira