Hátt í tíu þúsund manns hafa þegar skellt sér í bíó en myndin er sjálfstætt framhald af Síðustu veiðiferðinni sem kom út 2020. Sú mynd þótti óstjórnlega fyndin, mikið um berrassaða karla og vandræðalegar uppákomur og ef marka má titil nýrrar smáskífu úr myndinni sem kom út á Spotify í gær eftir tónskáld myndarinnar, Hall Ingólfsson, er það sama uppi á teningnum í nýju myndinni.
„Lagið heitir sem sagt Sverðdansinn og er úr atriði sem vakið hefur mikla kátínu. Ég vil meina að Sverðdansinn sé fallegt líkamlegt listaverk, án þess að fara nánar út í það. Hallur er algjör snillingur,“ segir Örn og hefur engar áhyggjur af því að hafa gengið of langt í vitleysisganginum í nýju myndinni. Myndin fjalli í raun um vináttuna og svo hafi landinn bara gott af því að láta hrista aðeins upp í sér.
„Allra síðasta veiðiferðin er öll stærri og tja, klúrari á köflum en sú fyrri en þetta er allt á góðum nótum. Það þarf aðeins að stuða fólk í dag, það þýðir ekki að vera með of mikinn tepruskap. Við erum ekki að endurtaka sömu myndina, leikarahópurinn er stærri og kvenhlutverkin eru stærri og svo þróast sagan í meðförum leikaranna og í klippiherberginu.“

Myndin hverfist um sama vinahópinn nema nú er Valur orðinn ráðherra og tekur tengdapabba sinn með í ferðina, forsætisráðherrann, sem Sigurður Sigurjónsson leikur. Það má því ekkert klikka í þessum túr og Valur leggur áherslu á það við félaga sína að þeir hagi sér vel. Það gengur svo sannarlega ekki eftir.
Er þetta kannski heimildarmynd um mannlegt eðli?
„Eru ekki allar myndir heimildamyndir?,“ segir Örn sposkur. „Við Þorkell Harðarson byggjum handritið á sönnum veiðisögum. Við sperrum eyrum hvar sem við komum í hús og fáum líka símtöl og tölvupósta þar sem fólk segir okkur krassandi sögur. Við drögum reyndar mikið úr í myndinni, það er nefnilega þannig að sannleikurinn tekur langt fram úr því skáldaða og það þarf yfirleitt að deila í hann með tíu, annars trúir þessu enginn,“ segir Örn.

Samkvæmt titli myndarinnar ættu veiðiferðirnar ekki að verða fleiri en þeir Örn og Þorkell eru víst ekki hættir.
„Næsta veiðiferð er komin í ferli og vonandi hefjast tökur í sumar!“



