Lífið

Dreifir jákvæðni og drifkrafti með nýju hlaðvarpi

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Kristján Hafþórsson, oft kallaður Krissi Haf, er þekktur fyrir jákvætt hugarfar.
Kristján Hafþórsson, oft kallaður Krissi Haf, er þekktur fyrir jákvætt hugarfar. Vísir/Helgi Ómars

Kristján Hafþórsson er þekktur fyrir einstaklega jákvætt hugarfar og á morgun fer í loftið nýja hlaðvarpið hans Jákastið.

Kristján segist alltaf hafa verið hress og kátur en að áherslan á jákvæðnina hafi orðið enn meiri og mikilvægari eftir að faðir hans féll frá.

„Það mótaði mig mjög mikið. Eftir þetta hef ég alltaf passað að horfa á glasið hálf fullt en ekki hálf tómt,“ segir Kristján í samtali við Lífið. 

„Aðal atriðið er að fólk fyllist af innblæstri, líði vel og finni fyrir jákvæðni og peppi þegar það hlustar,“ segir Kristján sem hefur alltaf átt sér þann draum að vera með sitt eigið hlaðvarp.

„Ég elska að blaðra og því hentar þetta mér ótrúlega vel. Í hverjum þætti fæ ég til mín góðan gest og sá fyrsti er Sindri Sindrason.“

Vil koma með eitthvað hvetjandi í umræðuna

Kristján er reglulega gestur í Brennslunni á FM957 og er þá kynntur inn sem „jákvæðasti maður landsins.“ Hlaðvarpsþættirnir Jákastið eru framleiddir af TAL og munu birtast vikulega hér á Vísi, í Bylgjuappinu, á vefum Tal.is og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

„Mér fannst kominn tími til að gefa jákvæðninni og drifkraftinum almennilegan sess. Það er svo oft verið að tala um eitthvað neikvætt og erfitt og fannst mér því þörf á því að leggja mitt af mörkum til þess að hafa umræðuna hvetjandi og jákvæða. Svo finnst mér þetta náttúrulega ótrúlega skemmtilegt og skapandi. Hlaðvarp er magnað listform sem mér finnst ég vera að finna mig vel í,“ útskýrir Kristján. 

„Mundu að þú ert frábær og mögnuð manneskja og ert algjört hæfileikabúnt. Aldrei gleyma því,“ segir Kristján að lokum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.