Samþykkja að Fujimori skuli sleppt úr fangelsi Atli Ísleifsson skrifar 18. mars 2022 14:17 Alberto Fujimori í dómsal stjórnlagadómstóls Perú í gær. Fujimori gegndi embætti Perú á árunum 1990 til 2000. AP Stjórnlagadómstóll Perú hefur úrskurðað að forsetanum fyrrverandi, Alberto Fujimori, skuli sleppt úr fangelsi. Hann hefur setið í fangelsi frá árinu 2007 eftir að hafa verið dæmdur í 25 ára fangelsi eftir að hafa verið sakfelldur fyrir glæpi gegn mannkyni.
Dómstóllinn hefur ákveðið að hinn 83 ára Fujimori skuli sleppt vegna mannúðarsjónarmiða, en hann hefur glímt við bága heilsu um árabil. Af sex dómurum við réttinn voru þrír á því að sleppa Mujimori úr haldi og þrír voru því andsnúnir. Séu atkvæði dómara jöfn er það atkvæði forseta dómstólsins sem ræður úrslitum. Um er að ræða æðsta dómstól Perú og því er ekki hægt að áfrýja málinu. Fujimori gegndi embætti forseta Perú á árunum 1990 til 2000 og var dæmdur í tengslum við tvær árásir herdeilda árið 1991 og 1992. Alls létu 25 manns lífið í aðgerðunum, þar af eitt barn, sem sagðar voru beinast gegn hryðjuverkasamtökum. Í forsetatíð sinni greip Fujimori til harðra aðgerða gegn vinstrimönnum í landinu. Fujimori flúði til Japans, heimalands foreldra sinna, eftir að hann lét af embætti, en var svo sakfelldur í fjarveru sinni og framseldur til Perú árið 2007. Vinstrimaðurinn Pedro Castillo, forseti Perú, segir ákvörðun stjórnlagadómstólsins nú sýna fram á „stofnanalega krísu“ í landinu og hvatti alþjóðlega dómstóla til að bregðast við. Castillo hafði betur gegn dóttur Fujimori, Keiko Fujimori, í forsetakosningunum á síðasta ári.
Perú Tengdar fréttir Fujimori segir að fangelsið myndi ganga af honum dauðum Náðun fyrrverandi forseta Perú var ógilt fyrir dómi í gær. Hann grátbiður yfirvöld um að senda sig ekki í fangelsi því það muni ríða honum að fullu. 4. október 2018 22:38 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Sjá meira
Fujimori segir að fangelsið myndi ganga af honum dauðum Náðun fyrrverandi forseta Perú var ógilt fyrir dómi í gær. Hann grátbiður yfirvöld um að senda sig ekki í fangelsi því það muni ríða honum að fullu. 4. október 2018 22:38