„Femínismi fjallar um svo margt annað en bara konur og réttindi þeirra“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 9. mars 2022 11:31 Lea Ævars hátíðarstjóri RVK FFF Aðsent RVK Feminist Film Festival verður haldin í þriðja skiptið 4. til 8. maí á þessu ári. RVK FFF er alþjóðleg kvikmyndahátíð sem setur kvikmyndir eftir kvenleikstýrur í loftvængi þar sem hvert einstakt snjókorn með sína einstæðu lögun mun njóta sín „
Fókusinn í ár snýr að kvikmyndagerðarkonum af öðrum kynþætti en hvítum, kvikmyndatónlist eftir konur, tísku, nýjustu Me Too bylgju á Íslandi og kynbundnu ofbeldi í nánum samböndum.“ segir í tilkynningu frá hátíðinni. Karllægur bransi „Femínismi fjallar um svo margt annað en bara konur og réttindi þeirra, heldur jafnrétti fyrir alla. Það er það sem RVK FFF stendur fyrir, jafnrétti og umburðarlyndi gagnvart öllum. Eins og staðan er í dag þá er raunveruleikinn ekki endurspeglaður í kvikmyndum og sjónvarpi heimsins þar sem kvikmyndabransinn er mjög karllægur. Vissulega er þetta að breytast hægt og rólega en því miður þá er enn langt í land með að konur, kynsegin fólk og fjölmenning séu sýnd í „mainstream“ miðlum. Kvikmyndamiðilinn er ótrúlega sterkur áhrifavaldur í lífi fólks og einmitt þess vegna er RVK Feminist Film Festival svo mikilvæg hátíð og með því að auka sýnileika kvikmynda sem endurspegla raunveruleikann erum við að búa til fyrirmyndir og bylta staðalímyndum sem heyra vonandi bráðum sögunni til,“ segir Lea Ævars hátíðarstjóri RVK FFF „Lucie Samkova Hall Allen, sendiherra ESB á Íslandi mun opna hátíðina í Bíó Paradís þann 4. maí en ásamt henni munu margir kvenskörugnar á Íslandi standa henni við hlið og bjóða alla velkomna á þessa fjölbreyttu og ævintýralegu kvikmyndahátíð kvenna á eyju þar sem eldur mætir ís á nær hverjum degi.“ Úkraínska kvikmyndagerðarkonan og nýstirnið Anastasia Babenko mun frumsýna stuttmynd sína, THE DIAPER CAKE, sem á uppruna sinn að rekja til stuttmynda handritsnámskeiðs RVK FFF 2021, Fabúlera undir stjórn handritshöfundarins og kvikmyndagerðarkonunnar Gabrielle Kelly sem starfar hjá American Film Institute í Ameríku. Bönnuð í Kenía Opnunarmynd hátíðarinnar í ár er RAFIKI eftir leikstýruna Wanuri Kahiu en hún er ein af upprennandi kvikmyndagerðarkonum í Afríku. Rafiki þýðir á vinur á Swahili. Um er að ræða rómantíska kvikmynd um lesbíur. Myndin gerist í Kenía þar sem slíkar ástarsögur eru bannaðar með lögum. Kvikmyndin var bönnuð í Kenía árið 2018 þegar hún kom út. Heiðursverðlaunahafi hátíðarinnar er Kristín Jóhannesdóttir, ein af frumkvöðlum kvenna í kvikmyndagerð á Íslandi og einn af stofnendum Women in film and TV á Íslandi (WIFT) á Íslandi. Nýjasta kvikmynd Kristínar, ALMA, verður sýnd og svo verður Q&A þar Dögg Mósesdóttir mun spyrja hana út í allt ferlið. Bíó paradís HverfisgötuVísir/Vilhelm Hátíðin í ár verður haldin í Bíó Paradís, Norræna Húsinu, Alliance Française í Reykjavík og Reykjavík Marina Hótel ásamt fleiri vel völdum stöðum borgarinnar. Á hátíðinni verða veitt verðlaun í stuttmyndakeppninni SYSTIR. Hlustum á sögur hvors annars Dómarar í ár eru, Arna Magnea Danks, Hrönn Marínósdóttir og Guðrún Elsa Bragadóttir. Að þessu sinni verða verðlaunagripirnir hannaðir af listakonunni Antóníu Bergþórsdóttur leirlistagerðarkonu en hún mun nota ösku úr eldgosinu við Fagradalsfjall. Veitt verða verðlaun fyrir stuttmyndir í nokkrum flokkum, besta tilraunakennda myndin, besta heimildarmyndin, besta leikna stuttmyndin, besta animation myndin og besta íslenska stuttmyndin. „Eigum við ekki öll sem mannkyn, sem fjölskylda að hlusta á sögur hvors annars? Þótt við séum með mismunandi niðurröðun erfðaeinda í frumukjarna þess eggs sem frjóvgaði viðkomandi? Eigum við ekki að njóta þess hversu frábrugðinn við erum frá hvort öðru? Margir eru ósammála, sérlega þeir sem hafa valdið. Við viljum þakka Reykjavíkurborg, Sendinefnd ESB á Íslandi, Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu, Kvikmyndamiðstöð Íslands, Reykjavík Icelandair Marina Hótel, Kvikmyndasafni Íslands, Íslandsstofu, Franska Sendiráðinu á Íslandi og Allianz Francais á Íslandi fyrir dyggan stuðning,“ segir Lea Ævars að lokum.
Bíó og sjónvarp Menning Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið Einhleypir þokkasveinar Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Lífið Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Lífið Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Lífið Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Lífið Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Lífið Þessi tíu lög komust í úrslit Lífið Fleiri fréttir Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Sjá meira