Skoðun

Viltu vinna milljón?

Gunnar Valur Gíslason skrifar

Við, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Garðabæjar, höfum undanfarin fjögur ár unnið staðfastlega að því að efna 100 framsækin fyrirheit sem við gáfum Garðbæingum fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 2018.

Leiðarljós okkar er traust, ábyrg fjármálastjórn og að skattar á bæjarbúa séu lágir.

Ráðdeild í rekstri

Bæjarstjórn Garðabæjar hefur í gegnum tíðina lagt mikla áherslu á styrka fjármálastjórn og að fjárhagur bæjarins sé traustur og stöðugur. Þannig er lagður grunnur að lágum sköttum á bæjarbúa.

Traust og stöðugleiki skipta öllu máli.

Veltufé frá rekstri er ein mikilvægasta kennitalan í rekstri sveitarfélaga. Þetta er fjárhæðin sem afgangs verður eftir hefðbundinn rekstur og er ætlað til að standa undir afborgunum lána bæjarsjóðs annars vegar og nýtist til fjárfestinga hins vegar.

Samanlagt veltufé frá rekstri bæjarsjóðs Garðabæjar á árunum 2016-2020 nam um 11.800 m.kr. -ellefu þúsund og átta hundruð milljónum króna. Á sama tíma hafa Garðbæingar búið við lægsta útsvarið á höfuðborgarsvæðinu.

Þetta ber vott um ráðdeild í rekstri og festu við stjórn fjármála Garðabæjar.

Árlegur 850 milljón króna ávinningur íbúanna

Lágir skattar skipta miklu máli, bæði fyrir atvinnulífið og fólkið í landinu.

Um margra ára skeið hefur álagningarhlutfall útsvars í Garðabæ verið langlægst meðal stærri sveitarfélaga landsins eða 13,70% á meðan mörg þeirra leggja á hámarksútsvar 14,52%.

Mismunurinn er 0,82% sem bæjarstjórn Garðabæjar lætur íbúana njóta.

Útsvarsstofn Garðabæjar 2022 er um 104 milljarðar króna. Skattsparnaður Garðbæinga af útsvari í ár, miðað við að ef hámarksútsvar væri lagt á útsvarsgreiðendur í bænum, er því um 850 milljónir króna.

Árlegar ráðstöfunartekjur heimila í Garðabæ hækka sem þessu nemur.

Á heilu kjörtímabili eru þetta þrjú þúsund og fjögur hundruð milljónir króna – fyrir heimilin í Garðabæ.

Meðalfjölskyldan sparar milljón á sex árum

Sé litið til meðal mánaðarlauna á Íslandi 2020 og hækkun launavísitölu frá desember 2020 til janúar 2022 samkvæmt Hagstofu Íslands sparar fjölskylda með meðallaun sem býr í sveitarfélagi þar sem álagningarhlutfall útsvars er 13,70%, líkt og í Garðabæ, eina milljón króna í útsvarsgreiðslur á sex ára tímabili miðað við að ef fjölskyldan byggi við heimilaða hámarks álagningu útsvars 14,52%.

Þetta skiptir ungar fjölskyldur (á öllum aldri) í Garðabæ miklu máli.

Ég vil vinna áfram fyrir þig

Ég hef sem bæjarfulltrúi og formaður menningar- og safnanefndar Garðabæjar síðastliðin átta ár unnið með félögum mínum að mótun samfélagsins okkar hér í Garðabæ. Ég býð bæjarbúum áfram krafta mína til að vinna bæjarfélaginu gagn á næsta kjörtímabili.

Nú átt þú leik.

Verum með og tökum þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins 5. mars nk. Hvetjum líka annað sjálfstæðisfólk í bænum til að gera slíkt hið sama.

Hvert atkvæði skiptir máli.

Höfundur er bæjarfulltrúi og formaður menningar-og safnanefndar Garðabæjar.




Skoðun

Sjá meira


×