Lífið

Dóra og Egill eru orðin hjón

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Brúðhjónin ljómuðu af hamingju á leiðinni út úr kirkjunni.
Brúðhjónin ljómuðu af hamingju á leiðinni út úr kirkjunni. Facebook/Dóra Jóhannsdóttir

Dóra Jóhannsdóttir leikkona og Egill Einarsson gengu í hjónaband þann 12. febrúar síðastliðinn. Dóra birti fallegar brúðkaupsmyndir á samfélagsmiðlum frá stóra deginum.

„12.02.2022 var fullkominn dagur og nú erum við hjón,“ skrifaði Dóra á Facebook. 

Myndbandið af bónorði þeirra vakti mikla athygli hér á Lífinu á Vísi á síðasta ári. Dóra fór óvænt á skeljarnar á spunasýningu Improv Ísland. Enginn af þessu fyrir fram svo meðlimir spunahópsins voru jafn hissa og áhorfendur.

„Við biðjum stundum áhorfendur um að skrifa leyndarmál á miða sem við lesum upp og spinnum út frá. Dóra las síðasta leyndarmál kvöldsins: Egill, viltu giftast mér? Við vissum ekkert, hann vissi ekkert, áhorfendur vissu ekkert en vá þetta var geggjað!“

Egill stökk upp á svið til Dóru og féllust þau í faðma við mikil fagnaðarlæti allra viðstaddra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.