Innlent

35 sjúk­lingar á Land­spítala nú með Co­vid-19

Atli Ísleifsson skrifar
Meðalaldur innlagðra er 62 ár.
Meðalaldur innlagðra er 62 ár. Vísir/Vilhelm

35 sjúklingar liggja nú á Landspítala með Covid-19 og fjölgar því um fimm milli daga. Einn er nú á gjörgæslu og er viðkomandi í öndunarvél.

Í gær var staðan þannig að þrjátíu sjúklingar voru á Landspítala með Covid-19. Tveir voru á gjörgæslu og annar þeirra í öndunarvél.

7.222 sjúklingar eru nú í Covid-göngudeild spítalans, þar af 2.517 börn. Í gær var 9.521 sjúklingur í Covid-göngudeild spítalans, þar af 3.272 börn.

Covid sýktir starfsmenn Landspítala í einangrun eru 218 samanborið við 228 í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×