Innlent

Allt niður í tíu stiga frost

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Það verður ekki sérlega hlýtt í dag, ef marka má spá Veðurstofunnar.
Það verður ekki sérlega hlýtt í dag, ef marka má spá Veðurstofunnar. Vísir/Vilhelm

Búast má við suðvestanátt á landinu í dag, þremur til tíu metrum á sekúndu, í dag. Skýjað með köflum, stöku él suðvestantil en annars þurrt að kalla. Frost á bilinu núll til tíu stig, kaldast í innsveitum.

Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar, þar sem segir að búast megi við vaxandi suðaustanátt í kvöld, átta til fimmtán metrum á sekúndu, í kvöld með slyddu og rigningu. Þó verður úrkomulítið norðaustantil.

Í fyrramálið gengur síðan í suðvestan fimmtán til 23 metra á sekúndu með rigningu eða slyddu. Hvassast með suðurströndinni. Eftir hádegi hvessir enn frekar og snýst í vestan- eða norðvestanátt, 20 til 28 metra á sekúndu. Áfram rigning, en síðan slydduél eða él og kólnandi veður.

Heldur hægari og úrkomulítið nyrst á landinu fram á kvöld. Annað kvöld lægir svo vestantil.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:

Sunnan og suðvestan 15-23 m/s og slydda eða rigning en úrkomulítið norðaustantil. Hiti 0 til 5 stig. Hvessir eftir hádegi, vestan 18-25 m/s og víða él en dregur heldur úr vindi vestantil og kólnar seint um kvöldið.

Á miðvikudag:

Fremur hæg sunnanátt, lítilsháttar snjókoma sunnan- og vestanlands en annars bjart með köflum en allhvöss vestanátt austast um morguninn. Frost 0 til 8 stig. Vaxandi vestanátt og bætir í ofankomu með heldur hlýnandi veðri um landið vestanvert um kvöldið.

Á fimmtudag:

Vestlæg átt og él, einkum við norðurströndina annars víða bjart með köflum. Vaxandi suðaustanátt og þykkna rupp með snjókomu suðvestantil um kvöldið. Frost 0 til 8 stig.

Á föstudag:

Ákveðin austan- og suðaustanátt. Rigning eða slydda sunnan og austantil en snjókoma norðanlands og úrkomulítið vestantil fram á kvöld. Hlýnar heldur í veðri, einkum sunnantil.

Á laugardag:

Líkur á vestan og norðvestan hvassviðri með éljum, einkum vestantil og talsverðu frosti.

Á sunnudag:

Útlit fyrir vestan hvassviðri og él en vaxandi sunnanátt vestantil um kvöldið og hlýnandi veður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×