Fyrrverandi varnarmálaráðherra Danmerkur grunaður um landráð Atli Ísleifsson skrifar 14. janúar 2022 14:58 Hinn 74 ára Claus Hjort Fredriksen var varnarmálaráðherra Danmerkur á árunum 2016 til 2019. EPA Claus Hjort Fredriksen, fyrrverandi varnarmálaráðherra Danmerkur, er grunaður af dönsku lögreglunni um að hafa brotið trúnað með því að greina fjölmiðlum frá upplýsingum sem varða við þjóðaröryggi, á þeim tíma er hann gegndi ráðherraembætti.
Þetta staðfestir hann í stuttri fréttatilkynningu sem flokkurinn Venstre birti í morgun. Verði Fredriksen fundinn sekur á yfir höfði sér allt að tólf ára fangelsi, en brotin falla í lögum undir kafla sem kallast „landráð“. DR segir frá málinu. Árið 2020 staðfesti Frederiksen í viðtali við Weekendavisen og fleiri fjölmiðla að leyniþjónusta danska hersins, FE, hafi unnið saman með bandarísku þjóðaröryggisstofnuninni, NSA, að njósnum í gegnum ljósleiðara. Lars Findsen, fyrrverandi forstjóri FE, er nú í gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa sömuleiðis lekið trúnaðarupplýsingum til fjölmiðla. Hann hefur verið í gæsluvarðhaldi síðan í desember. Í yfirlýsingunni segir Frederiksen að hann hafi „sem þingmaður tjáð sig um pólitískt mál“ en að hann myndi aldrei nokkurn tímann geta skaðað Danmörku eða hagsmuni ríkisins. Hinn 74 ára Claus Hjort Fredriksen var varnarmálaráðherra Danmerkur á árunum 2016 til 2019. Hann var sömuleiðis fjármálaráðherra á árunum 2009 til 2011 og aftur frá 2015 til 2016.
Danmörk Tengdar fréttir Fyrrverandi yfirmaður dönsku leyniþjónustunnar í haldi vegna lekamáls Fyrrverandi yfirmaður dönsku leyniþjónustunnar er í gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa lekið leynilegum upplýsingum sem taldar eru geta skaðað hagsmuni danska ríkisins. 10. janúar 2022 13:01 Mest lesið Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður Hvít jól, gular viðvaranir og varasamt ferðaveður Innlent Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Erlent Lyklaskipti í máli og myndum: „Þetta er voldugur lykill“ Innlent „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Innlent Tvö tröllvaxin mál og sækja eigi tekjurnar í fiskinn Innlent Flæddi inn í hús á Arnarnesi Innlent Missti stjórn á bílnum og endaði inni í garði Innlent Segir Helga Magnús óhæfan til að gegna embættinu Innlent Fleiri fréttir Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Musk og Trump valda uppnámi í Washington Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Vaktin: Dominique Pelicot dæmdur í tuttugu ára fangelsi Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Dómar yfirvofandi í máli Pelicot Ætla að birta Gaetz-skýrsluna eftir allt saman Hæstiréttur staðfestir dóm yfir Sarkozy Sjá meira
Fyrrverandi yfirmaður dönsku leyniþjónustunnar í haldi vegna lekamáls Fyrrverandi yfirmaður dönsku leyniþjónustunnar er í gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa lekið leynilegum upplýsingum sem taldar eru geta skaðað hagsmuni danska ríkisins. 10. janúar 2022 13:01