Segir stefna í algjört neyðarástand með óbreyttri þróun Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. janúar 2022 16:06 Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Vísir/vilhelm Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að með óbreyttri þróun kórónuveirufaraldursins stefni í algjört neyðarástand í heilbrigðiskerfi landsins og í margvíslegri innlendir starfsemi. Bæði vegna Covid-19 sjúkdómsins sjálfs og afleiddum áhrifum hans.
Þetta kemur fram í sameiginlegu minnisblaði Ölmu Möller landlæknis og Þórólfs sóttvarnalæknis til Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra í gær. Þórólfur skilaði minnisblaði til heilbrigðisráðherra þann 5. janúar þar sem hann lagði til óbreyttar aðgerðir í þrjár til fjórar vikur. Heilbrigðisráðherra tilkynnti að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun að núverandi aðgerðir hefðu verið framlengdar um þrjár vikur. Þórólfur segir í minnisblaði gærdagsins augljóst að þær sóttvarnaráðstafanir sem gripið hafi verið til og nú séu í gildi, séu í besta falli að halda COVID-19 faraldrinum í línulegum vexti en bæla hann ekki niður eins og ákjósanlegt væri. „Stjórnvöld þurfa því að íhuga alvarlega hvort ekki sé tímabært að gripið verði til hertra samfélagslegra aðgerða til að ná betri tökum á faraldrinum samhliða áframhaldandi uppbyggingu heilbrigðiskerfisins.“ Tuttugu mega koma saman Þórólfur rifjar upp vöxt faraldursins með tilkomu ómíkronafbrigðisins í byrjun desember. Aldrei hafa jafnmargir verið í einangrun hér á landi með Covid-19 en mun lægra hlutfall smitaðra en áður leggst þó inn á sjúkrahús. Þó það margir að Landspítalinn starfar á neyðarstigi og hefur fengið aðstoð frá öðrum sjúkrastofnunum. Starfandi forstjóri Landspítalans kallaði eftir því á dögunum að farið yrði í hertar aðgerðir. Þær voru síðast hertar rétt fyrir jól og tóku gildi þann 23. desember. Með reglugerðinni voru fjöldamörk færð í 20 manns, nándarreglu breytt úr einum metra í tvo, sundstaðir og líkamsræktarstöðvar máttu hafa opið fyrir 50% af hámarksfjölda, íþróttir leyfðar fyrir 50 manns í hólfi, sviðslistir leyfðar fyrir 50 manns á sviði og 50 áhorfendur, og veitingaog skemmtistaðir máttu hafa opið til kl. 21. Með notkun hraðgreiningaprófa var hins vegar leyft að auka hámarksfjölda á viðburðum upp í 200 manns í hólfi. Engar breytingar voru gerðar á skólastarfi. „Þrátt fyrir þessar takmarkanir þá hefur ekki tekist að fækka daglegum innanlandssmitum að marki og eru þau nú um 1.000-1.200 en að auki hafa verið að greinast allt að 300 manns á landamærum daglega,“ segir Þórólfur. Ómíkronafbrigðið breiðist hratt út en smithæfni þess sé verulega meiri en fyrri afbrigða. Þá sé delta afbrigði veirunnar enn útbreitt og orsaki nú í kringum 100 á dag. Mun meiri smithæfni en alvarleg veikindi fátíðari Þórólfur ræðir eiginleika ómíkrónafbrigðisins í minnisblaði sínu. Þeir séu frábrugðnir eiginleikum fyrri afbrigða. „Smithæfni þess er verulega meiri, það sleppur meira undan vernd bóluefna og alvarleg veikindi eru fátíðari. Með aukinni útbreiðslu ómícron afbrigðisins hafa innlagnir á sjúkrahús hins vegar aukist þrátt fyrir að alvarleg veikindi séu hlutfallslega færri,“ segir Þórólfur. „Um 0,2% þeirra sem smitast af ómícron afbrigðinu hafa þurft á spítalainnlögn að halda en hlutfall innlagna þegar delta afbrigðið á í hlut er um 1,7%; heildar hlutfall innlagna hefur verið 0,5%. Daglegar innlagnir á Landspítala eru nú um 5-7 en útskriftir um 2-4. Það er því ljóst að með óbreyttri smittíðni í samfélaginu þá mun fjöldi inniliggjandi sjúklinga með COVID-19 aukast jafnt og þétt með alvarlegri röskun á starfsemi heilbrigðisþjónustunnar, sérstaklega spítalakerfisins. Nánar er fjallað um heilbrigðiskerfið í greinargerð landlæknis hér að ofan.“ Þórólfur vitnar til spár fræðimanna við Miðstöðvar lýðheilsuvísinda við Háskóla Íslands og evrópskra vísindamanna hjá European Covid-19 Forekast Hub þar sem fram komi að búast megi áfram við rúmlega þúsund smitum á dag út janúar. Þá geri spálíkön Landspítala og Háskóla Íslands ráð fyrir að milli 57 og 89 sjúklingar geti verið inniliggjandi á sama tíma eftir um tvær vikur og milli 10 og 27 að auki á gjörgæslu. „Þannig má fullyrða að þær samfélagslegu aðgerðir sem nú eru í gangi eru ekki að bæla faraldurinn niður í viðráðanlegan fjölda þó vissulega komi þær í veg fyrir veldisvöxt hans. Frekari takmarkanir þurfa því að koma til ef takast á að fækka smitum og koma þannig í veg fyrir frekara neyðarástand í heilbrigðiskerfinu.“ Staðan krítísk Heilbrigðisráðherra, segir að næstu dagar séu krítískir í kórónuveirufaraldrinum. Hann er þó bjartsýnn á stöðuna. Forsætisráðherra telur að janúar og febrúar verði þungir, en svo fari að létta til. „Það eru mjög krítiskir dagar hér framundan. Við þurfum að vakta stöðuna. Við ræddum það vel hér í ríkisstjórn og mikil samstaða um það að við verðum að vera tilbúin til að styðja við og standa með heilbrigðiskerfinu. Þetta er auðvitað álag ofan í álag,“ sagði Willum Þór í morgun. „Þessi mánuður og sá næsti, þeir verða þungir. Svo held ég að við getum farið að horfa fram á bjartari tíma. Bæði vegna örvunarbólusetninga, vegna fleiri einstaklinga sem eru að fá bólusetningu og auðvitað með fleiri smitum þá eykst líka viðnámsþróttur samfélagsins,“ sagði Katrín. Willum Þór sagðist einnig vera bjartsýnn á það að mögulega væri farið að glitta í endann á faraldrinum. „Ég er bjartsýnn, ég er það vegna þess að okkar helstu sérfræðingar á þessu sviði, sóttvarnarsviði, eru bjartir á það að við séum farin að sjá hylla í það með veiku afbrigði veirunnar að við séum farin að sjá ljósið fyrir enda ganganna.“ Spánn kallar eftir samtali Á sama tíma berast þau tíðindi frá Spáni að forsætisráðherra landsins kalli eftir samtali í Evrópu um möguleika þess að skilgreina Covid-19 frekar eins og flensu. „Þetta er nauðsynleg umræða. Vísindin hafa gefið okkur það svar að verja okkur,“ sagði Pedro Sanchez í viðtali við útvarpsstöðina Cadena Ser, en Bloomberg greinir frá. Bætti hann við að dauðsföll af völdum Covid-19 væru ekki jafntíð og í upphafi faraldursins. „Við þurfum að meta þróun Covid frá faraldri yfir í landlægan sjúkdóm.“ Sanchez segir að mögulega megi, með öllum fyrirvörum, skoða sjúkdóminn út frá öðrum breytum en gert hafi verið hingað til. 692 þúsund smituðust af Covid-19 í síðustu viku á Spáni og eru nú rúmlega þrettán prósent sjúkrahúsrúma nýtt fyrir Covid-sjúklinga. Til samanburðar hafi hlutfallið verið tæplega 14 prósent fyrir ári þegar fjöldi smitaðra á einni viku var 115 þúsund.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Spánn Landspítalinn Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira