Langflestar þungaðar konur sem leggjast inn vegna Covid eru óbólusettar Hólmfríður Gísladóttir skrifar 10. janúar 2022 11:32 Bresk stjórnvöld hyggjast ráðast í átak til að fá þungaðar konur til að þiggja bólusetningu. Stjórnvöld á Bretlandseyjum segja nær allar þungaðar konur sem lagðar hafa verið inn með Covid-19 hafi verið óbólusettar. Yfirvöld hafa ráðist í herferð til að fá óléttar konur til að þiggja bólusetningu.
Þungaðar konur verða hvattar til að bíða ekki með að láta bólusetja sig eða þiggja örvunarskammt. Þá verður lögð áhersla á að kynna þá hættu sem óléttum konum og ungabörnum stafar af Covid-19. Reynslusögur þungaðra kvenna verða birtar í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum og konur upplýstar um að bóluefnin gegn Covid-19 séu örugg fyrir óléttar konur og að þau hafi engin áhrif á frjósemi, að því er Guardian greinir frá. Opinber gögn frá þeim aðila sem hefur eftirlit með þungunum sýna að 96,3 prósent óléttra kvenna sem lagðar voru inn með Covid-19 einkenni frá maí til október í fyrra voru óbólusett. Þriðjungur fékk einhvers konar öndunaraðstoð. Í um 20 prósent tilvika þurfti að framkalla fæðingu fyrir tímann til að stuðla að bata hjá konunni og um 20 prósent barnanna þörfnuðust sérstakrar aðhlynningar. Frá því í apríl í fyrra hafa 84 þúsund breskar þungaðar konur fengið einn skammt af bóluefni og fleiri en 80 þúsund tvo.
Bretland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy Erlent „Algjört þjófstart á sumrinu“ Innlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Innlent Fleiri fréttir Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sjá meira