Erlent

Fauci varar við ferðalögum um jólin og segir ómíkron ógna heilbrigðiskerfinu

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Bandaríkin eru meðal þeirra ríkja þar sem menn vænta ómíkron-bylgju í janúar.
Bandaríkin eru meðal þeirra ríkja þar sem menn vænta ómíkron-bylgju í janúar. AP/Susan Walsh

Anthony Fauci, sóttvarnalæknir Bandaríkjanna, varar við því að ferðalög fólks landshluta á milli yfir jólahátíðina muni verða til þess að ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar mun dreifast mun meira um Bandaríkin en ella, jafnvel á meðal þeirra sem eru fullbólusettir.

Fauci segir alveg ljóst að þetta afbrigði hafi ótrúlega mikla getu til að smitast milli manna og bendir hann á að afbrigðið sé nú í uppsveiflu víðast hvar um heiminn. Hefur hann biðlað til fólks að láta bólusetja sig og þiggja örvunarskammt og bera grímu þegar það ferðast.

Víða hefur verið hert á sóttvarnarreglum og hefur ferðatakmörkunum verið komið á í löndum á borð við Frakkland og Þýskaland. Í Hollandi hefur fólki verið sagt að halda sig heima yfir jólin. 

Fauci tekur undir með þeim sérfræðingum sem hafa bent á að þótt ómíkron-afbrigðið valdi vægari veikindum í flestum tilfellum geti hinn mikli fjöldi smitaðra sett heilbrigðiskerfi landanna úr skorðum. 

Von er á minnisblaði frá Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni nú með morgninum en búist er við að heilbrigðisráðherra kynni nýjar sóttvarnareglur eftir ríkisstjórnarfund á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×