Hvað á rjúpa að hanga lengi? Karl Lúðvíksson skrifar 19. desember 2021 18:27 Rjúpan er alltaf vinsæll jólamatur Þeir rjúpnaveiðimenn sem náðu feng sínum á þessu hausti hafa margir misjafnar venjur þegar kemur að því að láta fuglinn hanga.
Það eru nokkuð misjöfn svörin sem koma frá veiðimönnum varðandi hversu lengi rjúpan á að hanga en algengast er að hún hangi í 5-7 daga og gott er að minna þá sem voru að veiða sínar fyrstu rjúpur að láta þær alltaf hanga á hausnum. Varðandi tímalengdina þá eru sumir sem láta hana hanga lengur til að fá meira bragð og lengsti tíminn sem við fengum nefndan var þrjár vikur en ég get ómögulega mælt með því. Við ætlum ekki að blanda okkur í það hvernig rjúpan er matreidd því þar er siður hvers heimilis oft fjörgamall en hvetjum áhættugjarna líka til að prófa nýja uppskrift, þ.e.a.s. ef þú leggur í að breyta hefðum.Rjúpan er látin hanga til að hún meyrni og eins til að fá bragð í bringurnar úr fóarninu og það skal taka það fram að þú finnur mikin bragðmun á rjúpu sem fær að hanga og þeirri sem fær ekki að hanga. Það er ein þumalputtaregla sem er gott að hafa varðandi hversu lengi hún er að hanga og hún er eftirfarandi. Þegar margfölduð tala dagafjölda og meðalhitastigs á hverjum degi nær 40, eða sem næst því, er hún búin að hanga nóg. Sem dæmi ef það er ca 5 stiga hiti þá má hún hanga í 8 daga. 8 dagar sinnum 5 stiga hiti gera 40.
Skotveiði Rjúpa Mest lesið 95 sm lax í Elliðaánum Veiði Laxinn kominn í vötnin í Svínadal Veiði Norðurá opnar í fyrramálið Veiði Hausttilboð hjá Veiðiflugum Veiði Varmá að koma sterk inn með hækkandi vatni Veiði Kröftugar göngur í Eystri Rangá Veiði 50 laxar á 3 dögum úr Skjálfanda Veiði Dagbók Urriða komin út Veiði Tilkynning frá Veiðimálastofnun Veiði Kuldaleg veðurspá um helgina Veiði