Erlent

Hvert Evrópu­ríkið á fætur öðru skellir í lás fyrir jólin

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Heimir Már Pétursson skrifa
Hvert Evrópuríkið á fætur öðru er nú að herða sóttvarnaaðgerðir vegna uppgangs ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar.
Hvert Evrópuríkið á fætur öðru er nú að herða sóttvarnaaðgerðir vegna uppgangs ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar. EPA-EFE/FILIP SINGER

Hvert Evrópuríkið á fætur öðru grípur til hertra sóttvarnaaðgerða fyrir jólin vegna þess að ómíkron afbrigði kórónuveirunnar dreifir sér með leifturhraða um álfuna.

Jean Castex forsætisráðherra Frakklands reiknar með að afbrigðið verði orðið það algengasta snemma á næsta ári. Mark Rutte forsætisráðherra Holland hefur sagt það sama um ómíkron afbrigðið. 

Frakkar hertu enn á sóttvarnaskilyrðum fyrir fólk sem kemur frá Bretlandi. Í frétt breska ríkisútvarpsins segir að Bretland hafi enn sem komið er farið verst út úr yfirstandandi bylgju faraldursins þar sem yfir fimmtán þúsund manns greindust smitaðir í gær. 

Frakkar hafa sömuleiðis stytt tímann sem þarf að líða á milli þess sem fólk fær annan og þriðja skammt Covid-19 bóluefnisins og fólk þarf þá að vera fullbólusett til að fá inngöngu á veitingastaði og í almenningssamgöngur ef þeir ætla að fara langa leið. 

Víða um Evrópu hafa stjórnvöld hert á sóttvarnaaðgerðum eins og í Þýskalandi, Írlandi, Hollandi og Danmörku, þar sem um tólf þúsund manns greindust í fyrradag. Nú hafa um 89 milljónir manna í Evrópu smitast og ein og hálf milljón látist af Covid-19 samkvæmt nýjustu tölum Evrópusambandsins.

Ítalía, Grikkland og Portúgal kynntu sömuleiðis hertar takmarkanir fyrr í vikunni og munu allir ferðamenn frá öðrum Evrópuríkjum þurfa að sýna fram á neikvætt kórónuveirupróf við komuna til landanna þriggja. Það á líka við um þá sem hafa verið bólusettir. 


Tengdar fréttir

Biden fær að skylda starfs­­fólk í bólu­­setningu

Alríkisdómstóll í Bandaríkjunum hafa nú kveðið á um að Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, verði heimilt að skylda starfsmenn stærri fyrirtækja í bólusetningu gegn kórónuveirunni. Ákvörðunin gæti haft áhrif á um 84 milljónir manna.

Tvöföld Covid-bylgja í Bandaríkjunum

Tvöföld Covid-bylgja gengur nú yfir Bandaríkin en bæði delta- og ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar eru í mikilli dreifingu þar. Áhyggjur eru uppi um að slæmt ástand muni versna vestanhafs á næstu vikum og það sama á við um Bretland þar sem ráðamenn óttast áhrif afbrigðisins.

„Fyllsta á­stæða til að hafa miklar á­hyggjur”

Sóttvarnalæknir segir faraldurinn enn á ný á greinilegri uppleið eftir smittölur gærdagsins. Delta afbrigðið er enn ráðandi hér, en spálíkan hinna Norðurlandanna gera ráð fyrir mjög erfiðum næstu vikum vegna útbreiðslu ómíkron. Óbólusettir, börn og fullorðnir, eru þau sem smitast helst hérlendis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×