Lífið samstarf

Neo og Trinity snúa aftur átján árum síðar

Saga Film
Keanau Reeves og Carrie-Anne Moss snúa aftur sem Neo og Trinity í fjórðu mynd Matrix seríunnar.
Keanau Reeves og Carrie-Anne Moss snúa aftur sem Neo og Trinity í fjórðu mynd Matrix seríunnar.

Matrix 4 frumsýnd fyrir jól.

Matrix aðdáendur fá heldur betur jólaglaðning í ár þegar Neo og Trinity snúa aftur á stóra tjaldið þann 22. desember í Matrix Resurrections.

Átján ár eru síðan þriðja myndin í seríunni, Matrix Revolutions kom út og þá var fullyrt að hún yrði sú síðasta. Árið 2019 kom loks loforð um að fjórða myndin væri í bígerð og Carrie-Anne Moss og Keanu Reeves myndu snúa aftur sem Trinity og Neo. Myndin yrði í leikstjórn Lana Wachowski, Lilly Wachowski systir hennar yrði ekki með.

Handritshöfundar eru auk Lana Wachowski, David Mitchell og Alexander Hemon. Með aðalhlutverk auk Kianau Reeves og Carriie- Anne Moss fara Christina Ricci og Priyanka Chopra Jonas.

Matrix myndirnar eru löngu orðnar költ en bíógestir vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið þegar fyrsta Matrixmyndin kom út árið 1999. Margir vilja meina að Matrix hafi brotið blað í sögu kvikmyndagerðar fyrir tæknilegar útfærslur og myndatökur í bardagasenum. Þá þótti söguþráðurinn algjörlega magnaður.

Ekkert hefur fengist upp gefið um söguþráð Resurrections en áhorfendum er lofað meistaralegum bardagasenum, kung fu style, með flæðandi hreyfingum eins og gerðu okkur kjaftstopp í fyrstu myndinni. Reyndar hefur kvissast út að myndin sé engin smásmíði og áhættuatriðin svakaleg. Meðal annars stökkva Trinity og Neo fram af 43 hæða háhýsi og loka þurfti miðborg San Fransisco eins og hún leggur sig við þær tökur.

Myndin verður frumsýnd 22. Desember í Sambíóunum Álfabakka, Egilshöll Kringlunni, Akureyri, Keflavík, Smárabíó, Laugarásbíó, Borgarbíó Akureyri og Háskólabíó.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.