Í skýrslu úttektarnefndar ÍSÍ eru birt skilaboð fyrrverandi vinkonu þeirra Arons Einars og Eggerts til konunnar sem þeir eru sakaðir um að hafa nauðgað eftir landsleik í Kaupmannahöfn haustið 2010.
Tengdamóðir þolanda lét skilaboðin fylgja með tölvupósti sem hún sendi á stjórn KSÍ og alla starfsmenn sambandsins þar sem hún greindi frá meintri nauðgun sem tengdadóttir hennar varð fyrir. Hún sendi póstinn eftir frægt viðtal Guðna Bergssonar, þáverandi formanns KSÍ, í Kastljósi.
„Þar sem frásögn mín sem starfsmanns KSÍ til að verða 25 ára og tengdamóður þolandans, flokkast ekki sem ábending í eyrum og augum formanns KSÍ samkvæmt viðtali í Kastljósi sem og fleiri fjölmiðlum, sendi ég hér með formlega ábendingu um meint kynferðisofbeldi tveggja landsliðsmanna eftir landsleik Danmerkur og Íslands á Parken 7.september 2010.
Meðfylgjandi er frásögn tengdadóttur minnar sem ég er marg búin að ræða um við Guðna og einnig fylgja með skilaboð sem tengdadóttir mín fékk nýverið frá fyrrum vinkonu þessara leikmanna.“
Í skilaboðunum segist vinkonan fyrrverandi sjá afar mikið eftir því að hafa stutt við bakið á þeim Aroni Einari og Eggerti og biður meintan þolanda afsökunar á afstöðu sinni. Hún segist á endanum hafa hætt samskiptum við leikmennina „út af svo mörgum furðulegum atvikum þar sem ég var neydd til að ljúga fyrir þá og taka með þeim stöðu.“
Skilaboð vinkonunnar til meints þolanda, sem er kölluð Z í skýrslunni, eru svohljóðandi:
Sæl [Z],
Ég er búinn að skrifa þessi skilaboð cirka 100 sinnum og stroka út því ég veit í rauninni ekkert hvað ég get sagt. Ég trúi samt á það að viðurkenna mistök sín og taka ábyrgð og ætla þess vegna að henda þessu til þín.
Ég man eins og það hafi gerst í gær þegar ég fékk símtal frá vini mínum út af þessu atviki sem þú lentir í 2010.
Þetta voru vinir mínir sem gerðu þér þetta. Það hafði spurst út að þú ætlaðir að kæra þá og vinahópurinn átti að fara á fullt að reyna að koma í veg fyrir það til þess að skemma ekki þeirra mannorð.
Alger bilun ég veit.
Þessir strákar höfðu allt valdið í höndum sér. Frægð og frama, peninga, vinsældir og voru ekkert eðlilega sannfærandi þegar þeir sögðu að þú hefðir viljað þetta allan tímann og að þetta væri kjaftæði. Þeir gátu ekki einu sinni staðið saman heldur bentu á hvorn annan og sögðu að hinn hefði gert þetta. Ég var algerlega heilaþvegin og tók með þeim stöðu. Þú dróst þetta svo til baka og þeir héldu bara áfram með lífið einsog ekkert hefði gerst, dauðfegnir að þurfa ekki að taka neina ábyrgð.
Ég hef svo oft hugsað um þetta atvik, og nú mörgum árum seinna þegar ég er búin að slíta öllum mínum samskiptum við þá fyrir löngu út af svo mörgum furðulegum atvikum þar sem ég var neydd til að ljúga fyrir þá og taka með þeim stöðu þá sé ég [...]
Mér finnst ógeðslegt að hugsa til þess hvernig ég tók afstöðu með þeim gegn þér.
Mig langaði bara að biðja þig afsökunar þó að þú hafir fullan rétt á að kasta því út á hafsauga.
Ég er stolt af þér að koma með þetta fram, ég trúi þér og ég stend með þér ef þú ætlar með þetta mál lengra.
Konan sagði sögu sína á Instagram 9. maí síðastliðinn. Þar sagði hún tvo menn hafa nauðgað sér í Kaupmannahöfn haustið 2010 en nafngreindi þá ekki.
Rannsókn lögreglu á málinu stendur nú yfir en bæði Aron Einar og Eggert hafa gefið skýrslu. Í yfirlýsingu frá lögmönnum þeirra segir að þeir búist fastlega við því að málið verði fellt niður.
Aron Einar og Eggert stigu fram í október í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar og sóru af sér allar sakir. Aron Einar sagðist aldrei hafa beitt ofbeldi og Eggert sagðist fullkomlega saklaus af því sem hann hefur verið sakaður um.