Innlent

149 greindust með Covid-19 í gær

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Alls hafa 198 verið lagðir inn á Landspítala vegna Covid-19 frá 30. júní síðastliðnum.
Alls hafa 198 verið lagðir inn á Landspítala vegna Covid-19 frá 30. júní síðastliðnum. Vísir/Vihelm

149 greindust með Covid-19 innanlands í gær. Af þeim voru 92 fullbólusettir og 57 óbólusettir.

Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum liggur 21 sjúklingur inni vegna sjúkdómsins. Þrír eru á gjörgæslu, þar af tveir í öndunarvél.

1.745 sjúklingar, 555 börn, eru í umsjá Covid-göngudeildar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×