Innlent

Mannréttindabrot í miðbænum

Snorri Másson skrifar
Gámur við Hallgrímskirkju vekur athygli.
Gámur við Hallgrímskirkju vekur athygli. Vísir/Vilhelm

Íslandsdeild Amnesty International ýtti úr vör meiri háttar herferð í fyrradag. Yfirskriftin er Þitt nafn bjargar lífi - og um er að ræða stærstu mannréttindaherferð í heimi, sem í ár fagnar 20 ára afmæli.

Til þess að vekja athygli á herferðinni hefur gámi verið komið fyrir fyrir framan Hallgrímskirkju og innan í honum eru aðstæður eins og þær gerast verstar í Erítreu að mati mannréttindasamtakanna. Þar er talið að fólki sé haldið föngnu í gámum af sama toga.

Fréttastofa kannaði aðstæður í gámnum, sem má horfa á hér að neðan: 

Í ár er lögð áhersla á mál tíu þolenda. Þar á meðal er mál Chiam Ali. Hún fæddist í Los Angeles en ólst upp í Erítreu. Hún var aðeins 15 ára þegar hún hvarf sporlaust. Stjórnvöld í Erítreu eru talin hafa numið hana á brott í hefndaraðgerð gegn föður hennar, sem grunaður var um aðild að valdaránstilraun. Síðan eru liðin 9 ár. Erítrea er sögð alræmd fyrir að halda fólki föngnu í gámum neðanjarðar þar sem það þarf að þola miklar öfgar í hita og kulda. 

Óttast er að Chiam sé haldið fanginni í slíku neðanjarðarfangelsi. 

Bryndís Bjarnadóttir herferðarstjóri hjá Amnesty.

Íslendingar búa við fjölmörg forréttindi, segir í kynningartexta frá Amnesty. Því geti mál sem þessi virst okkur fjarlæg og jafnvel óviðkomandi. Í herferðinni í ár er því reynt að vekja almenning til umhugsunar um hvernig hending ein getur staðið á milli þess að fá að njóta mannréttinda og ekki. Til dæmis í hvaða landi fólk fæðist eða af hvaða uppruna það er. 

Til að minna á átakið verða einnig ýmsar áberandi byggingar baðaðar gulu ljósi sem er litur Amnesty International og táknar vonarljós þolenda mannréttindabrota. Hægt er að kynna sér málefnin og skrifa undir á www.amnesty.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×