Í fréttum Stöðvar 2 var Mjóeyri heimsótt en hún er í jaðri byggðarinnar á Eskifirði. Þar er leiði Eiríks Þorlákssonar, sem fæddur var á Þorgrímsstöðum í Breiðdal árið 1765 en hálshöggvinn 21 árs gamall.
„Þetta er síðasta aftaka á Austurlandi og með þeim síðustu á Íslandi,“ segir Sævar Guðjónsson, ferðaþjónustubóndi á Mjóeyri, og vísar okkur á leiðið.
Á Berufjarðarströnd hafði Eiríkur drepið pilt sem hafði verið með honum í gengi þriggja pilta í Breiðdal sem lögðust út og stálu sér til matar á tíma móðuharðindanna þegar hungursneyð var í landinu.
Aftakan fór fram árið 1786, sama ár og Eskifjörður og Reykjavík hlutu kaupstaðarréttindi.
„Og settur hér upp höggstokkur og hann leiddur í járnum hér út þorpið og hálshöggvinn hér á Mjóeyri.“
Böðullinn var bóndi í Norðfirði, Björn að nafni, að sögn Sævars. Sá átti sjálfur eitthvað sökótt við yfirvaldið en gat unnið sér sakaruppgjöf með því að hálshöggva Eirík. Lýsingar á aftökunni eru óhugnanlegar en sagan segir að höfuðið hafi farið af í sjöunda höggi.
„Öxin var bitlaus og Björn að sjálfsögðu draugfullur við þetta verkefni. Og einhverjar sögur segja að það hafi verið hérna danskur skipstjóri sem hafi nú ekki getað horft upp á þetta en klárað verkið,“ segir Sævar.
Fleiri sögur frá Eskifirði eru sagðar í þættinum Um land allt, sem sýndur var á Stöð 2 í kvöld.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2: