Lífið

Tónleikum Bocelli líklega frestað

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Stórsöngvarinn Andrea Bocelli er á tónleikaferðalagi og átti að koma fram í Kórnum í Kópavogi 27. nóvember.
Stórsöngvarinn Andrea Bocelli er á tónleikaferðalagi og átti að koma fram í Kórnum í Kópavogi 27. nóvember. Getty/Daniele Venturelli

„Í ljósi tilkynninga stjórnvalda í dag lítur út fyrir að tónleikum Andrea Bocelli verði frestað enn og aftur,“ sendi Sena frá sér í tilkynningu rétt í þessu. 

Tónleikunum hefur áður verið frestað vegna faraldursins en til stóð að halda þá 27. nóvember næstkomandi. 

„Ekki er hægt að sjá að miðað við þær hömlur sem voru kynntar sé gerlegt að halda tónleikana. Þetta er mjög sorglegt fyrir allan viðburðageirann og um gríðarlegt tjón að ræða þar sem aðeins tvær vikur eru í tónleikana.“

Skipuleggjendur segjast vera í samtali við alla sem að tónleikunum koma og muni svo tilkynna niðurstöðu eins fljótt og hægt er.

„Á meðan viljum við þakka miðahöfum fyrir þolinmæði og skilninginn.“


Tengdar fréttir

Fimmtíu manna samkomubann á miðnætti

Hert verður á samkomutakmörkunum á miðnætti en þá mega fimmtíu manns koma saman en þó með svigrúmi fyrir 500 manna viðburði. Opnunartími veitinga- og skemmtistaða verður styttur um klukkustund og þeim gert að loka klukkan 22:00.

Fresta tónleikum Andrea Bocelli fram á næsta ár

Tónleikarnir með Andrea Bocelli sem áttu að fara fram 3. október í Kórnum hafa verið færðir til laugardagsins 10. apríl 2021, vegna útbreiðslu kórónuveirunnar sem veldur COVID-19 sjúkdómnum.

Tónleikum Andrea Bocelli frestað

Tónleikarnir með Andrea Bocelli sem áttu að fara fram 23. maí í Kórnum hafa verið færðir til 3. október 2020, vegna útbreiðslu kórónaveirunnar sem veldur Covid-19 sjúkdómnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.