Lífið

Ætlar ekki að eyða jólunum ein

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Jóhanna Guðrún gefur út nýtt jólalag í dag.
Jóhanna Guðrún gefur út nýtt jólalag í dag. Aðsent

Jóhanna Guðrún gefur út hresst jólalag í dag. Lagið heitir einfaldlega Ætla ekki að eyða þeim ein. Lag og texta samdi Ásgeir Orri Ásgeirsson en hann sá einnig um upptökustjórn.

Jóhanna Guðrún skildi fyrr á árinu og er komin aftur í samband með sínum fyrrverandi, Ólafi Friðriki Ólafssyni. Fréttablaðið greindi fyrst frá sambandinu. Jóhanna Guðrún og Ólafur voru par í nokkur ár og voru saman þegar hún lenti í öðru sæti í Eurovision.

Jóhanna Guðrún og Ólafur voru par þegar hún keppti fyrir Íslands hönd í Eurovision

Jóhanna gaf út plötuna Jól með Jóhönnu í nóvember á síðasta ári og naut hún töluverðra vinsælda. Á plötunni eru tíu lög. Fimm þeirra eru frumsamin og fimm eru tökulög. Tveir gestasöngvarar eru á plötunni en það eru þeir Sverrir Bergmann og Eyþór Ingi Gunnarsson.

Lagið Ætla ekki að eyða þeim ein má heyra á Spotify og í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Jóhanna Guðrún - Ætla ekki að eyða þeim ein

Miðasala er hafin á jólatónleika söngkonunnar, Jól með Jóhönnu. Jóhanna Guðrún, hljómsveit og sérstakir gestir bjóða upp á notalega jólastemmningu og flytja öll uppáhalds jólalögin 28. nóvember í Háskólabíói.

Á plötunni er lagið Löngu liðnir dagar sem er samið af Jóni Jónssyni en textann samdi Einar Lövdahl Gunnlaugsson. Þá samdi Bubbi Morthens eitt lag á plötunni, og Gunnar Þórðarson eitt. En auk þess inniheldur platan útgáfu Jóhönnu á laginu Vetrarsól eftir Gunnar.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Jóhanna Guðrún á von á þriðja barninu

Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir á von á sínu þriðja barni. Eins og kom fram í fjölmiðlum í dag er Jóhanna Guðrún byrjuð aftur í sambandi með Ólafi Friðriki Ólafssyni.

„Það er enginn að fara að gefa þér neitt“

„Legðu hluti á þig og gerðu það sem þú þarft að gera til að komast þangað sem þú vilt fara. Í rauninni er enginn eða ekkert sem stoppar þig svo framarlega sem þú veist hvert þú ætlar að fara. Þú þarft að sjá þetta fyrir þér, ég ætla þangað,“ segir söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir.

Jóhanna Guðrún og Davíð hvort í sína áttina

Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og tónlistarmaðurinn Davíð Sigurgeirsson hafa endað hjónaband sitt. Jóhanna Guðrún staðfesti þetta í samtali við fréttastofu.

Jóhanna Guðrún lagði blóð, svita og tár í nýja jólaplötu

Fyrr í dag tilkynnti Jóhanna Guðrún glænýja tíu laga jólaplötu sem er væntanleg frá henni þann 19. nóvember. Platan heitir Jól með Jóhönnu og var það Davíð Sigurgeirsson eiginmaður hennar Jóhönnu sem stýrði upptökum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.