Lífið

Leitað að keppendum fyrir sjónvarpsþáttinn Krakkakviss

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Mikael Emil Kaaber og Berglind Alda Ástþórsdóttir stjórna þættinum Krakkakviss.
Mikael Emil Kaaber og Berglind Alda Ástþórsdóttir stjórna þættinum Krakkakviss. Stöð 2

Stöð 2 leitar að þátttakendum á aldrinum tíu til tólf ára, nemendum í 5. til 7. bekk, í Krakkakviss sem er nýr og stórskemmtilegur spurningaþáttur. Tökur á þáttunum fara fram í stúdíói Stöðvar 2 í lok nóvember og verða þeir sýndir í janúar á næsta ári.

Í þáttunum verða þrír keppendur saman í liði og keppa fyrir hönd íþróttafélaga, líkt og í spurningaþættinum Kviss. Stjórnendur þáttarins eru Berglind Alda Ástþórsdóttir og Mikael Emil Kaaber. Opið er fyrir umsóknir til 9. nóvember.

Það er einfalt að sækja um. Setjið saman þriggja manna lið og takið upp myndband þar sem þið segið frá ykkur og liðinu. Í hverju liði þurfa að vera keppendur af báðum kynjum.

Í myndbandinu er gott að þið kynnið ykkur með nafni, segið frá íþróttafélaginu ykkar og af hverju ykkur langar til að taka þátt í Krakkakviss. Svo viljum við endilega fá að heyra einn góðan brandara frá ykkur í lokin.

Fyrir frekari fyrirspurnir er hægt að senda tölvupóst á krakkakviss@stod2.is.

Hér er hægt að senda inn umsókn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.