Mágur þingmanns til rannsóknar í tengslum við innherjasvik Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 28. október 2021 18:36 Öldungadeildarþingmaður Repúblíkanaflokksins, Richard Burr. Getty/Nash Mágur öldungadeildarþingmanns Bandaríkjanna Richard Burr er nú til rannsóknar vegna mögulegra tengsla við innherjasvik. Mágur Burr, Gerald Fauth, seldi hlutabréf á bilinu 97 upp í allt að 280 þúsund dollara í kjölfar símtals við þingmanninn.
Atvik máls eru talin hafa verið með þeim hætti að Richard Burr hafi hringt í mág sinn og líklega veitt honum upplýsingar um stöðu á hlutabréfamarkaðnum. Þingmaðurinn fékk reglulega upplýsingar um þróun faraldursins í störfum sínum sem formaður leyniþjónustu öldungadeildarinnar og hafði hann þannig aðgang að mun meiri upplýsingum en almenningur. Símtal þeirra félaga stóð um í um það bil fimmtíu sekúndur en Fauth, mágur Burr, hringdi í veðbréfasala strax í kjölfarið. Fauth dreif sig að selja hlutabréf en mörg bréfanna hrundu í verði vegna kórónuveirufaraldursins. Öldungadeildarþingmaðurinn Richard Burr hefur verið áberandi vegna hlutabréfaviðskipta sinna síðasta árið. Þingmaðurinn seldi hlutabréf fyrir um 1,6 milljón bandaríkjadala viku áður en markaðir hrundu vegna faraldursins. Mál Burr þykir sérstakt að því leyti að árið 2012 var hann einn þriggja öldungadeildarþingmanna af hundrað, sem greiddu atkvæði gegn lögum sem meina þingmönnum að stunda hlutabréfaviðskipti í tengslum við þær upplýsingar sem þeir komast yfir vegna starfa þeirra. Propublica greinir frá.
Bandaríkin Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Gerðu húsleit hjá þingmanni og lögðu hald á síma hans Starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna lögðu í gær hald á síma öldungadeildarþingmannsins Richard Burr og gerðu húsleit á heimili hans. Hann hefur verið til rannsóknar vegna hlutabréfaviðskipta hans í aðdraganda kórónuveirufaraldursins í Bandaríkjunum. 14. maí 2020 10:59 Mest lesið Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi Innlent Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir Innlent „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Innlent Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Innlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Brestir í MAGA-múrnum Erlent Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Erlent Hækka hitann í Breiðholtslaug Innlent Fleiri fréttir Segir Trump hafa persónuleika alkóhólista Brestir í MAGA-múrnum Lögðu lengi á ráðin um herlög Tólf ára drengur grunaður um morð í Malmö Heimta enn héruð Úkraínu sem þeir halda ekki Ósátt við lögreglu sem leitar enn morðingjans Segjast hafa myrt átta sæfarendur til viðbótar FDA samþykkir tvö ný lyf gegn ónæmum lekandabakteríum Vill fimm milljarða Bandaríkjadala frá BBC Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Sjá meira
Gerðu húsleit hjá þingmanni og lögðu hald á síma hans Starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna lögðu í gær hald á síma öldungadeildarþingmannsins Richard Burr og gerðu húsleit á heimili hans. Hann hefur verið til rannsóknar vegna hlutabréfaviðskipta hans í aðdraganda kórónuveirufaraldursins í Bandaríkjunum. 14. maí 2020 10:59