Innlent

Bein út­sending: Vísindin og vel­ferð barna

Atli Ísleifsson skrifar
Harvey-Milkman-vísindamadur-a-radstefnu-um-forvarnir-Planet-Youth-2020-og-Rannsokna-og-greiningar
Aðsend

Ráðstefnan Vísindin og velferð barna fer fram í dag á Icelandair Hotel Natura við Nauthólsveg. 

Í tilkynningunni segir að Ísland hafi verið í fararbroddi í samstarfi vísindamanna og starfsfólks á vettvangi þegar kemur að ákvörðunum sem skipta mestu máli í lífi og umhverfi barna og ungmenna. 

Á ráðstefnunni mun samstarfsfólk Rannsókna og greiningar segja frá hvernig þau byggja ákvarðanir á staðreyndum.

Hægt er að fylgjast með útsendingunni að neðan, en hún stendur frá 12 til 16. 

Dagskrá

12:00 Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson Forseti setur ráðstefnuna

12:10 Inga Dóra Sigfúsdóttir stofandi Rannsókna og greiningar Saga R&G

12:20 Salvör Nordal umboðsmaður barna Gildi vísinda fyrir stefnumótun

12:30 Dóra Guðrún Guðmundsdóttir sviðsstjóri lýðheilsusviðs hjá Embætti landlæknis Það sem við mælum hefur áhrif á stefnur og aðgerðir

12:40 Páll M. Ríkharðsson framkvæmdastjóri Planet Youth Ungt fólk um allan heim – Planet Youth

12:50 Soffía Pálsdóttir skrifstofustjóri frístundamála hjá Reykjavíkurborg Nýting rannsókna í forvarnarvinnu skóla- og frístundastarfs í Reykjavík

13:00 Kaffipása

13:10 Hafþór B. Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi hjá Reykjanesbæ Reykjanesbær – allir með!

13:20 Bryndís Björk Ásgeirsdóttir prófessor við HR Rannsóknir á ofbeldi gegn börnum

13:30 Rannveig Þórisdóttir sviðsstjóri þjónustusviðs Ríkislögreglustjóra Hvað geta gögn lögreglu sagt okkur um velferð barna? Gildi skráninga og greininga

13:40 Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastjóri hjá Jafnréttisskólanum Klám, myndasendingar og kynheilbrigði

13:50 Arnar Ævarsson framkvæmdastjóri – Heimili og skóli Gögnin fyrir börnin – Fræðum foreldra

14:00 Sigríður Björk Einarsdóttir framkvæmdastjóri SAMFOK Foreldrar og gildi góðra gagna

14:10 Kaffipása

14:20 Hugrún Snorradóttir verkefnisstjóri lýðheilsumats hjá Reykjavíkurborg Lýðheilsumat á óbeinum áhrifum COVID-19 faraldursins á börn og ungmenni í Reykjavík

14:30 Edda Davíðsdóttir tómstunda- og forvarnafulltrúi hjá Mosfellsbæ Mikilvægi upplýsinga í skóla- og frístundastarfi

14:40 Geir Gunnlaugsson prófessor emerítus – Háskóli Íslands Ungt fólk í hnattrænu umhverfi

14:50 Erla Björnsdóttir framkvæmdastjóri Betri svefns Betri svefn – Betra líf

15:00 Kaffipása

15:10 Bóas Valdórsson sálfræðingur Sálfræðiráðgjöf í MH

15:20 Ragnhildur Skúladóttir sviðsstjóri fræðslusviðs Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands Íþróttir og vísindin

15:30 Kristinn Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs Akureyrarbæjar Að rýna til gagns

15:40 Margrét Lilja Guðmundsdóttir sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu Nýjustu niðurstöður og áskoranir

15:50 Þórhildur Halldórsdóttir lektor í sálfræði við Háskólann í Reykjavík Mikilvægi vísinda á tímum heimsfaraldurs

16:00 Jón Sigfússon framkvæmdastjóri Rannsókna og greiningar Ráðstefnulok




Fleiri fréttir

Sjá meira


×