„Hvort sem þú ert einstaklingur sem pantar köku þegar samstarfsmaður á afmæli eða vinurinn sem allir treysta á til að panta borð á veitingastað eða miða á leiksýningu, þá ertu að sinna því sem vísindamenn kalla ósýnilega vinnu,“ segir Ingrid Kuhlman, einn helsti sérfræðingur landsins í tímastjórnun. Ingrid segir þessi verkefni oft léttvæg ein og sér. „En samanlagt slíta þau sundur daginn hjá manni, lengja hann og læðast inn í frítímann.“
Ingrid Kuhlman, framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar er með meistaragráðu í hagnýtri jákvæðri sálfræði. Ingrid er höfundur bókarinnar Tímastjórnun – í starfi og einkalífi og kennir reglulega námskeið um tímastjórnun. Þegar kemur að umfjöllun um skuggavinnuna okkar, bendir Ingrid á bókina ,,Shadow Work: The Unpaid, Unseen Jobs That Fill Your Day eftir Craig Lambert sem kom út árið 2015.
En hvað er skuggavinna og hvernig getum við orðið betri í tímastjórnun með því að verða meðvitaðri um skuggavinnuna okkar?
Atvinnulífið fékk Ingrid til að skýra út málin.
Erum með marga hatta á höfðinu
Ingrid segir skuggavinnuna okkar gegnsýra lífið okkar án þess að við séum meðvituð um það. Þetta þýðir að í stað þess að einbeita okkur að verkefnum, erum við stöðugt að skipta um hatta:
Við breytumst úr maka í gjaldkera og úr foreldri í starfsmann ferðaskrifstofu.
Í ofanálag gerir tæknin okkur kleift að vera neytendur allan sólahringinn.
IKEA er gott dæmi um skuggavinnu þar sem við skoðum fyrst bæklinginn á netinu og þurfum síðan að sækja ósamsett húsgögnin á lagerinn, flytja þau heim og setja þau saman sjálf.
Við framkvæmum COVID sjálfspróf heima þegar við erum á leið á mannamót,“
segir Ingrid sem dæmi um skuggavinnu sem við þekkjum.
Meira að segja fólk í leit að ástinni er upptekið í skuggavinnu:
„Margir sem eru að leita að ást segja að síður eins og Einkamál eða Tinder verði að aukastarfi þar sem þeir verja mörgum klukkutímum í að skoða notendasíður, svara skilaboðum og skipuleggja stefnumót.“
Kostir og gallar
Ingrid segir marga kosti fylgja skuggavinnu. Við spörum til dæmis tíma og pening þegar að við tökum bensín á bílinn sjálf.
Á móti kemur að skuggavinnan getur skapað streitu og kostað orku.
Þá tekur hún dýrmætan tíma frá fjölskyldunni og áhugamálum.
Ingrid segir sérfræðiráðgjöf fá minna og minna vægi, þar sem við erum alltaf að reyna að bjarga okkur sjálf. Gúgglum á netinu og reynum að finna okkur upplýsingar til að læra eða nýta okkur.
Fyrir vikið drögum við úr félagslegum samskiptum.
„Samtalið við starfsmanninn á afgreiðslukassanum, í bankanum, á bensínstöðinni eða hjá tannlækninum var kannski ekki ýkja spennandi en uppfyllti vissulega ákveðnar félagslegar þarfir,“ segir Ingrid.
Sjálf spáir hún því að skuggavinna muni aukast á næstu misserum og árum. Þetta sé tímafrek vinna og liður í því að þótt vinnutíminn okkar hafi styst, finnst okkur við aldrei hafa haft eins mikið að gera og nú.
Við þurfum því að vera meðvituð um skuggavinnu í daglega lífinu þar sem það getur gefið okkur val og aukið lífsgæði. Að ferðast í og úr vinnu er sem dæmi launalaust verkefni sem við vinnum í þágu atvinnurekandans.
Þegar okkur er gert kleift að vinna heima einn eða tvo daga í viku sparar það okkur ótal klukkustundir sem er þá hægt að nota í annað,“
segir Ingrid.

Dæmi um skuggavinnu
Hér er listi með nokkrum dæmum um skuggavinnu.
- Við skráum okkur inn í tölvu við komu á heilsugæslustöð eða þegar við förum til tannlæknis, sjúkraþjálfara eða sérfræðilæknis.
- Á sumum veitingastöðum er okkur boðið upp á að panta mat og drykk með því að leggja snjallsímann upp að örgjörva og þá opnast síða í símanum þar sem hægt er að panta og ganga frá greiðslu.
- Við náum í hádegismat úr hlaðborði, fáum okkur áfyllingu á gosi og göngum síðan frá bakkanum, diskinum og servíettunum á þar til gerðum stað.
- Við verjum dágóðum tíma í að leita að hagstæðu flugi, gistingu og bílaleigubíl áður en ferðalagið til útlanda hefst á Keflavíkurflugvelli, þar sem við þurfum að sjálfsögðu að innrita okkur sjálf og skila töskunum.
- Við sinnum öllum okkar bankamálum sjálf á netinu eða í smáforritum.
- Við gúgglum eða skoðum YouTube myndbönd þegar eitthvað bilar og gerum sjálf við bílinn, brauðristina eða prentarann.
- Við leitum til læknis til að fá „annað álit“ eftir að við erum búin að greina okkur sjálf á netinu og finna út hvaða lyf eru í boði.
- Tölvur og snjallsímar hafa tekið yfir starf einkaritarans og halda utan um fundi, símtöl, tölvupóstsamskipti o.s.frv.
- Í stað þess að leita til ráðningarskrifstofu notum við síður eins og Alfreð sem bjóða upp á að skrá störf og taka vídeóviðtöl auk ýmissa úrvinnslutóla.
- Við útbúum starfsmanna- og þjónustukannanir á eigin spýtur með litlum tilkostnaði eða ókeypis forritum eins og SurveyMonkey eða Google Survey í stað þess að leita til fagaðila.
- Við kaupum gjafabréf í stað þess að verja tíma í að leita að gjöf og komum þannig skuggavinnunni yfir á aðra.