Bíó og sjónvarp

Yfirgefur NCIS eftir átján þáttaraðir

Samúel Karl Ólason skrifar
Mark Harmon.
Mark Harmon. Getty/Exelle/Bauer

Leikarinn Mark Harmon hefur ákveðið að segja skilið við Leroy Jethro Gibbs, sem hann hefur leikið í rúmar átján þáttaraðir í þáttunum NCIS. Þetta tilkynnti framleiðandi þáttanna langlífu en hélt hann þó möguleikanum opnum á að Gibbs myndi stinga upp kollinum á nýjan leik seinna meir.

Orðrómur um brottför Harmon hefur verið á kreiki um nokkuð skeið en hann er orðinn 70 ára gamall.

Gibbs var fyrst kynntur til leiks í þáttunum JAG árið 2003. Skömmu eftir það stýrði Harmon eigin þáttum um rannsóknarlögreglumenn sjóhers Bandaríkjanna. Þættirnir hafa vaxið í gegnum árin. NCIS: Los Angeles voru frumsýndir árið 2009 og eru enn í sýningu. NCIS: New Orleans voru sýndir í sjö þáttaraðir og NCIS: Hawaii voru frumsýndir nú í haust.

Í yfirlýsingu sem birt var samhliða fjórða þætti nítjándu þáttaraðar NCIS hrósaði Steve Binder, framleiðandi þáttanna, Harmon í hástert. Hann sagði Harmon hafa verið gífurlega mikilvægan og að hann hefði ávallt barist fyrir því að persónurnar væru í forgrunni, samkvæmt Deadline.

Binder bætti við að mögulega gæti Gibbs sést aftur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.