Nýtt lag frá ZÖE í lokaþætti Truth Be Told Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 8. október 2021 17:01 ZÖE hefur verið búsett á Íslandi í um fimm ár. Aðsent Í dag gefur tónlistarkonan ZÖE út smáskífuna Blood in the Water. Lagið mun verða áberandi í lokaþætti Apple+ þáttaraðarinnar Truth Be Told sem sem skartar stórstjörnum á við Octaviu Spencer, Kate Hudson, Aaron Paul og Lizzy Caplan. Lokaþátturinn verður frumsýndur á streymisveitunni í dag.
ZÖE er Kalifornískur lagahöfundur, tónlistarframleiðandi og upptökustjóri sem hefur fundið sig á Íslandi. Eftir gríðarlega velgengni í Bandaríkjunum sem forsprakki hljómsveitarinnar Little Red Lung ákvað ZÖE að koma til Íslands í nokkrar vikur til að láta reyna á að semja og flytja tónlist hundrað prósent á eigin forsendum. Nú fimm árum síðar býr hún enn á Íslandi þar sem hún hefur meðal annars starfað sem umboðsmaður Mezzoforte, samið og sungið titillag myndarinnar Lof mér að falla og rekur sitt eigið stúdíó, Studio River, þar sem hún tekur og upp og framleiðir annað tónlistarfólk. Hægt er að hlusta á lagið Blood in the Water á Spotify og hér fyrir neðan. Klippa: ZÖE - Blood in the Water Tólfta nóvember ætlar ZÖE þó að breyta áherslum hjá sér en þá kemur fyrsta breiðskífan hennar, SHOOK, út. Umfjöllunarefnið er ekkert léttmeti en á þessari 15 laga plötu gerir ZÖE upp margra ára samband sem einkenndist af andlegu ofbeldi, hvernig það braut hana niður andlega og styrkinn sem þurfti til að brjótast út úr slíkum aðstæðum. ZÖE heitir fullu nafni Zöe Ruth Erwin en hún segist vera ein af fáu tónlistarfólki sem kemur í alvörunni frá Los Angeles, en hún ólst þar upp og skar sig þannig út frá öðru aðfluttu tónlistarfólki. Hún fór að láta til sín heyra sem forsprakki, lagahöfundur, framleiðandi og upptökustjóri hljómsveitarinnar Red Little Lung snemma á síðasta áratugi en frá og með 2010 var sveitin meira og minna á tónleikaferðalagi í sex heil ár. ZÖE kallar þessi ár hálfgerða eldskírn en á þessum tíma lærði hún meira um tónlistarbransann en hún hefði nokkurn tíma getað ímyndað sér. Velgengni Red Little Lung fól meðal annars í sér að spila á Bonnaroo Music & Arts Festival þar sem hún deildi sviði með Paul McCartney, Tom Petty og Björk, meðal annara, og þó nokkur lög hljómsveitarinnar slógu rækilega í gegn við það að vera spiluð í þáttum eins og So You Think You Can Dance og The Originals, sem og mörgum öðrum Netflix og Fox þáttaröðum. Í ofanálag voru Little Red Lung nefnd sem rísandi stjörnur sem fylgjast ætti með af virtu útvarpsstöðvunum NPR og KCRW. Þegar hljómsveitin lagði upp laupana 2016 voru þau búin að sanka að sér hundruðum þúsunda spilanna á Youtube og með vel yfir eina milljón streyma á Spotify. Þetta var árið 2016 en eftir dauða föður síns og upplausn Little Red Lung, ákvað ZÖE að nýta tækifærið, meðan taugar og tilfinningar voru enn upp á sitt hráasta, að ferðast einhvers staðar sem hún hefði aldrei getað ímyndað sér að fara, til þess að semja og taka upp plötu í heild sinni á þremur vikum. Markmiðið var að fara út fyrir þægindarammann til að uppgötva nýja nálgun á sköpunargáfuna. ZÖE kom til Íslands að vetri til og upplifði náttúruna sem bæði fullkomna og grimma; einstaka landslagið, ofsafengni vindurinn og stanslausa myrkrið gerðu henni kleift að jarðtengjast á hátt sem hún hafði áður ekki þekkt. Með hráar taugar og umkringd mátt íslensku náttúrunnar þróaði hún persónulegan tónlistarstíl sinn en honum má best lýsa sem drungalegri popptónlist með dramatísku ívafi þar sem eterískar melódíur, seiðandi taktur og grípandi viðlög ráða ríkjum. Það sem byrjaði sem þriggja vikna verkefni þróaðist fljótt í þriggja mánaða dvöl, sem að lokum leiddi til þess að ZÖE fluttist til Reykjavíkur árið 2017 en síðan þá hefur hún meðal annars stofnað eigið upptökuver, Studio River, samið titillag myndarinnar Lof mér að falla eftir Baldvin Z og sinnt stöðu umboðsmanns Mezzoforte. Hér fyrir neðan má sjá myndband við lag ZÖE, Summer funeral, sem leikstýrt var af Baldvin Z. Á frumraun ZÖE í fullri lengd, breiðskífunni SHOOK sem kemur út 12. nóvember næskomandi, erum við tekin á kraftmikið og berskjaldað ferðalag um myrkustu djúp ofbeldissambands og hvernig henni tókst að brjótast í gegnum það til að finna sína eigin rödd, bæði í óeiginlegri og bókstaflegri merkingu. ZÖE segir aðeins hafa haft eina hugmynd að leiðarljósi við það að semja SHOOK; algeran heiðarleika. Hvert af þeim 15 lögum sem eru á plötunni gefa innsýn inn í mynstur ofbeldis sem er því miður svo gott sem meitlað í stein, en skömm, gaslýsing, stjórnun, ótti og blekking koma fram í djúpum textum ZÖEar á meðan hljóðheimurinn einkennist af djúpum, drungalegum og taktföstum útsetningum með rokkuðu yfirbragði.
Tónlist Bandaríkin Tengdar fréttir ZÖE frumsýnir myndband við lagið Shook Vísir frumsýnir í dag myndbandið við lagið Shook frá tónlistarkonunni og pródúsentinum ZÖE, sem er þekktust fyrir lagið sitt Let Me Fall sem var titillag myndarinnar Lof Mér Að Falla. Lagið Shook er fyrsta lag af komandi breiðskífu hennar sem er væntanleg á næsta ári. 26. ágúst 2020 12:00 Mest lesið „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Lífið Eins og þruma úr heiðskíru lofti Lífið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Lífið Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Lífið Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum Lífið Sykursalur orðinn einn vinsælasti veislusalur Reykjavíkur Lífið samstarf Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Lífið Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Lífið Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Lífið Byltingarkennd nýjung fyrir blondínur frá JOHN FRIEDA Lífið samstarf Fleiri fréttir Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Vill að Menendez bræðrum verði veitt frelsi Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Eminem verður afi Foreldrar minnka við sig svo börnin geti keypt fyrstu eign „Mikilvægt að umkringja sig fólki sem veitir manni innblástur“ Sjá meira
ZÖE frumsýnir myndband við lagið Shook Vísir frumsýnir í dag myndbandið við lagið Shook frá tónlistarkonunni og pródúsentinum ZÖE, sem er þekktust fyrir lagið sitt Let Me Fall sem var titillag myndarinnar Lof Mér Að Falla. Lagið Shook er fyrsta lag af komandi breiðskífu hennar sem er væntanleg á næsta ári. 26. ágúst 2020 12:00