Skoðun

Svika­myllan í kringum gengið og gjald­eyris­vara­sjóðinn

Ólafur Örn Jónsson skrifar

Handstýring á gengi krónunnar undanfarin ár er þófnaður frá Lífeyrisþegum um hábjartan dag. Í fyrstalagi þá byggja þjóðir ekki gjaldeyrisvarasjóði með þessum hætti. Draga fé útúr hagkerfinu sem er og þarf að vaxa til að endurheimta skiptinguna í þjóðfélaginu sem var fyrir hrun krónunnar. Þjóðir geta notað tekjur af sameiginlegum auðlindum og sölu á eignum þjóðarbúsins til nokkurra ára til að byggja gjaldeyrisvarasjóði. Það sem gert var hérna var að óopinber dr í hagfræði sem unnið hafði í áratugi að „verkefnum“ fyrir útgerðamenn inní HÍ er ráðinn af fjármálaráðherra sem er formaður flokks útgerðarmanna inní fjármálaráðuneytið til að finna leiðir til að STOPPA ris krónunnar við aukinn hagvöxt af stór auknum tekjum þjóðarinnar sem farnar voru að nálgast þær mestu á mannsbarn í heimi.

Ekki veit ég hvaðan Ragnar Árnason fékk þessa fordæmalausu hugmynd að FALSA gengi krónunnar með því að kaupa upp gjaldeyrir en hún virkaði vel fyrir útgerðamenn eftir að búið var að reka og síðan endur ráða Má Seðlabankastjóra og þvinga hann til að framkvæma þennan þjófnað frá samfélaginu, launafólki og sérstaklega okkur lífeyrisþegum sem biðum varanlegan skaða af þessu. Með þessu var kaupmáttur launa lækkaður verulega og verðbólgan gerð varanleg og óviðráðanleg. Þarna var fórnað væntanlegu góðæri til lands og sjávar fyrir óstjórnlega ÓÁUNNAR ofur tekjur stór útgerðanna á kostnað lífeyrisþega og samfélagsins alls. Þetta líkist engu örðu en skipulögðu glæpamáli sem færði útgerðunum þúsundir milljóna og ætti að rannsaka sem slíkt.

Síðan núna heyrum við stjórnmálamenn sem þögðu á meðan þessi viðbjóður stóð sem hæst tala um þennan gjaldeyrisvarasjóð sem er stolið af Lífeyris og launþegum eins og þetta sé eign þjóðarinnar. Ef þessi sjóður á að vera eign þjóðarinnar verða þeir sem högnuðust á þessari svikamyllu að borga milljarðana sem stolið var af okkur til baka.

Vona að fólk skilji hvað ég er að upplýsa hérna og leggist á árar með mér að fá þetta leiðrétt og okkur bættur sá skaði sem þetta skítaplott olli. Svona svik er ekki hægt að framkvæma nema meintur þjófur eigi ekki bara ríkisstjórnina heldur líka dómskerfið.

Höfundur er heldriborgari, fyrrverandi sjómaður og aflaskipstjóri.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×