Faldi sig inni í herbergi af ótta við Angjelin Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa 16. september 2021 11:21 Angjelin Sterkaj hefur játað að hafa orðið Armando Baqirai að bana laugardagskvöldið 13. febrúar. Vísir Spænskur vinur Antons Kristins Þórarinssonar segist hafa verið hræddur við Angjelin Sterkaj. Hann hefði falið sig inni í herbergi í íbúð þangað sem Angjelin mætti daginn eftir morðið, af ótta við Angjelin.
Aðalmeðferð í Rauðagerðismálinu hófst á mánudag og er reiknað með að skýrslutökum ljúki í dag. Fjórir eru ákærðir fyrir manndráp. Angjelin Sterkaj er sakaður um að hafa skotið Armando Beqirai til bana laugardagskvöldið 13. febrúar síðastliðinn, sem hann hefur játað en ber fyrir sig sjálfsvörn. Shpetim Qerimi, Murat Selivrada og Claudia Sofia Coelho Carvalho eru sömuleiðis ákærð hvert fyrir sinn þátt sem leiddi til þess að Armando var banað. Meint skuld sögð tóm þvæla Anton Kristinn, sem lýst hefur verið sem umfangsmiklum aðila í fíkniefnaheiminum hér á landi, sagði fyrir dómi í gær ekkert til í því að Armando hafði ætlað að kúga út úr honum fleiri milljónum króna. Fram kom í gögnum sem lekið var á Internetið í upphafi árs að Anton hefði verið upplýsingagjafi hjá lögreglu á sínum tíma. Mátti merkja á Antoni í dómsal í gær að það mál tengdist ekki Rauðagerðismálinu með neinum hætti. Angjelin fullyrti á mánudag að Armando hefði ætlað að kúga fé út úr Antoni. Anton hafnar þessu og fleiri sem báru vitni í dómsal í morgun, og þekkja Anton, tóku undir með honum. Einn þeirra, vinur Armandos, sagði tóma þvælu að Armando hafi „sett skuld“ á Anton Kristinn. Anton Kristinn blés á það að hafa fengið sterkbyggða karlmenn til Íslands snemma árs eftir að út spurðist að hann hefði verið upplýsingagjafi. Tveir menn hefðu komið frá Tenerife, vinir hans, til að starfa í byggingariðnaði. Þeir báru vitni í morgun. Bjó í íbúð Antons Kristins Annar vinurinn, spænskur, sagðist hafa komið til Íslands til að starfa hér. Hann hefði kynnst Antoni á Tenerife þegar Anton var þar í fríi. Anton dvelur stóran hluta ársins á Spáni hvar hann spilar meðal annars golf. „Þegar ég kom til Íslands tók hann á móti mér,“ sagði spænski vinnurinn. Þeir hafi fengið að búa í íbúð Antons. Angjelin hafi hann lítið hitt en þeir báðir verið hluti af hópi fólks fór norður í land í snjósleðaferð vikuna fyrir manndrápið í Rauðagerði. Vinurinn sagði ferðina hafa verið skrýtna og sérstaklega hegðun Angjelins. Angjelin hafi verið á stöðugum þeytingi norður og suður. Þannig hafi þeir keyrt saman norður í land, en Angjelin hafi keyrt aftur suður daginn eftir. Fram hefur komið að Angjelin ók í Borgarnes og svo aftur norður. Spánverjinn lýsti því að þeir hafi loks allir haldið saman suður á nýjan leik á laugardeginum, daginn sem Armando var skotinn til bana. Angjelin hafi tjáð honum við komuna til Reykjavíkur að hann þyrfti aftur að fara norður. Hræddur að Angjelin sæi sig Daginn eftir hafi hann svo heyrt af morðinu í Rauðagerði og áttað sig á því hvað hefði gerst. Þeir hafi frétt að hinn vinurinn hafi verið handtekinn. Í framhaldinu hafi hann sjálfur verið handtekinn en skömmu áður hafði hann hitt Angjelin. Þeir höfðu verið saman í íbúð hjá íslenskum vini Antons Kristins. Þar var Spánverjinn með konu íslenska vinarins og barni þeirra þegar Angjelin mætti. Spánverjinn lýsti því að hann hefði falið sig inni í herbergi í íbúðinni á meðan Angjelin var þar. Angjelin hafi líklega verið þarna í um klukkustund. „Ég vildi ekki að hann fyndi mig,“ sagði Spánverjinn. „Ég var hræddur við hann, vildi ekki að hann sæi mig. Ég hafði komist að þeirri niðurstöðu að Angjelin hefði eitthvað með málið að gera,“ sagði Spánverjinn. Þá lýsti Spánverjinn fundi sem hann átti með Antoni Kristni og karlmanni sem hann taldi að gæti hafa verið Armando. Hann hefði þó átt fleiri fundi með Antoni og þéttbyggðum karlmönnum og myndi ekki náið hvenær þeir fundir fóru fram.
Morð í Rauðagerði Dómsmál Tengdar fréttir „Ég þekki þessa hluti, þetta eru ekki manneskjur“ Góðvinur og samstarfsmaður Armando Beqirai var harðorður í garð sakborninga í Rauðagerðismálinu svokallaða þegar hann bar vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann sagði sakborningana fjóra ekki manneskjur heldur hluti. 15. september 2021 17:01 Ellen segir fjölskyldunni sundrað vegna Rauðagerðismálsins Ellen Egilsdóttir, eiginkona Antons Kristins Þórarinssonar, sagði fyrir dómi í dag að fjölskyldu hennar hefði verið sundrað í tengslum við Rauðagerðismálið. 15. september 2021 15:12 Anton Kristinn segir ekkert til í fullyrðingu um 50 milljóna króna sekt Anton Kristinn Þórarinsson segir ekki eiga við rök að styðjast að aðilar í undirheimum hafi ætlað að sekta hann um tugi milljóna króna. Hann þvertekur fyrir að hafa vitað af fyrirætlunum Angjelin Sterkaj um að gera Armando Beqirai mein. Hefði hann vitað það hefði hann tekið fyrir það. 15. september 2021 14:34 Óku 300 kílómetra norður í land með föt og bíl fyrir Angjelin og Claudiu Rúmenskt par sem bjó við hliðina á Angjelin Sterkaj og Claudiu Sofiu Coelho Carvalho í Brautarholti 4 segja að Angjelin Sterkaj hafi oft verið með skotvopn heima hjá sér. Parið ók norður í land með bíl og föt fyrir Angjelin og Claudiu eftir að Armando Beqirai var ráðinn bani í Rauðagerði rétt fyrir miðnætti laugardagskvöldið 13. febrúar. 15. september 2021 12:12 Mest lesið Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Innlent Helgi Pétursson er látinn Innlent Þorleifur Kamban er látinn Innlent Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Innlent Vitinn á Gjögurtá fallinn í sjó fram Innlent Þrír látnir eftir að rútu var ekið á biðskýli Erlent Umdeildur skólastjóri í leyfi á meðan úttekt er gerð Innlent „Ég er sá sem getur fellt hann“ Erlent Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Innlent Kom ekki til greina hjá starfshópi en nú líkleg niðurstaða Innlent Fleiri fréttir Auka sýnileika milli rýma á leikskólum „Algjört vandræðamál og sorglegt“ Þau eru nýir talsmenn fatlaðs fólks á þingi Herja á umsækjendur um alþjóðlega vernd Hælisleitendur og börn í auknum mæli notuð sem burðardýr Sameining geti aukið aðdráttarafl fyrir nýja íbúa Arnfríður og Víðir Smári tímabundið í Landsrétt Eldur í Sorpu á Granda Keyrði aftan á strætisvagn Vegagerðin býður út for- og verkhönnun Fljótaganga Safna undirskriftum til að styðja Fjarðarheiðargöng Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur í Garðabæ Vitinn á Gjögurtá fallinn í sjó fram Kom ekki til greina hjá starfshópi en nú líkleg niðurstaða Sjö sækja um tvær lausar stöður Minni hagvöxtur og hjólhýsin mögulega í Skerjafjörðinn Ætla að flytja starfsemi Vogs Tvöfalt fleiri skipulagðir brotahópar en fyrir tíu árum Klóraði sig til blóðs meðan hann svaf Skortir lækna í Breiðholti Staðfesti tveggja ára dóm vegna nauðgunar í jólateiti fyrir austan Fleiri sem ekki verja neinum tíma í lestur Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Helgi Pétursson er látinn Stolinn köttur, nágrannaerjur og ungmenni til vandræða Lýsa víðtæku ofbeldi gagnvart eldra fólki og kalla eftir vakningu Vill byrja á næstu göngum árið 2027 en segir ekki hvar Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Bregðast ekki við bílastæðavanda við skíðasvæði í Reykjavík Héldu styrktartónleika fyrir kristna flóttamenn Sjá meira
„Ég þekki þessa hluti, þetta eru ekki manneskjur“ Góðvinur og samstarfsmaður Armando Beqirai var harðorður í garð sakborninga í Rauðagerðismálinu svokallaða þegar hann bar vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann sagði sakborningana fjóra ekki manneskjur heldur hluti. 15. september 2021 17:01
Ellen segir fjölskyldunni sundrað vegna Rauðagerðismálsins Ellen Egilsdóttir, eiginkona Antons Kristins Þórarinssonar, sagði fyrir dómi í dag að fjölskyldu hennar hefði verið sundrað í tengslum við Rauðagerðismálið. 15. september 2021 15:12
Anton Kristinn segir ekkert til í fullyrðingu um 50 milljóna króna sekt Anton Kristinn Þórarinsson segir ekki eiga við rök að styðjast að aðilar í undirheimum hafi ætlað að sekta hann um tugi milljóna króna. Hann þvertekur fyrir að hafa vitað af fyrirætlunum Angjelin Sterkaj um að gera Armando Beqirai mein. Hefði hann vitað það hefði hann tekið fyrir það. 15. september 2021 14:34
Óku 300 kílómetra norður í land með föt og bíl fyrir Angjelin og Claudiu Rúmenskt par sem bjó við hliðina á Angjelin Sterkaj og Claudiu Sofiu Coelho Carvalho í Brautarholti 4 segja að Angjelin Sterkaj hafi oft verið með skotvopn heima hjá sér. Parið ók norður í land með bíl og föt fyrir Angjelin og Claudiu eftir að Armando Beqirai var ráðinn bani í Rauðagerði rétt fyrir miðnætti laugardagskvöldið 13. febrúar. 15. september 2021 12:12