Innlent

Um 100 húsbílar í Þorlákshöfn um helgina

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Félagsskapurinn í Félagi húsbílaeigenda þykir einstakur því þar eru allir jafnir án stéttar og stöðu.
Félagsskapurinn í Félagi húsbílaeigenda þykir einstakur því þar eru allir jafnir án stéttar og stöðu. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Um eitt hundrað húsbílar og eigendur þeirra eru nú staddir í Þorlákshöfn þar sem síðasta sumar útilega Félags húsbílaeigenda fer fram. Elsti félaginn, sem er að verða 99 ára fór á húsbílnum sínum í tíu daga ferð um Norðurland í sumar með félaginu.

Tjaldsvæðið í Þorlákshöfn er fullt af húsbílum og eigendur þeirra,  enda árshátíð Félags húsbílaeigenda í gangi í heimabæ formanns félagsins, sem er ánægður með sumarið, sem er að líða.

„Það var algjörlega æðislegt eins og hjá bara landanum yfir höfðuð. Við erum að tala um sól og blíðu og einstakan félagsskap eins og þú sérð. Þetta er félag, sem telur yfir 800 félaga um allt land og þessi virku eru í kringum 200 til 300, þá meina ég að láta sjá sig í ferðum, mæta og hafa gaman saman,“ segir Elín Íris Fanndal formaður Félags húsbílaeigenda.

Elín segir að félagið hafi staðið fyrir fjölmörgum útilegum í sumar, sem allir hafi heppnast frábærlega. Hún segir að það sé mikill vinskapur og tryggð í félaginu enda sé félagsskapurinn magnaður.

Elín Íris Fanndal, stoltur formaður Félags húsbílaeigenda stödd í sínum húsbíl.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Hún og maður hennar búa í Þorlákshöfn en kjósa samt frekar að vera í húsbílnum um helgina.

„Já, það er meiri nánd í húsbílnum, ég hef karlinn nær mér, það er ekki slæmt,“ segir Elín og hlær.

Elsti félaginn, sem verður 99 ára í desember er duglegur að ferðast á sínum húsbíl með félaginu.

„Já, já, ég er búin að fara 10 daga túr norður með félaginu,“ segir Axel Þór Friðriksson, sem býr í Njarðvík í Reykjanesbæ.

Einn af hápunktum dagsins í dag hjá Húsbílafélaginu voru tónleikar með Stórsveit Íslands og svo í kvöld er árshátíð félagsins með tilheyrandi fjöri og skemmtun.

Allar nánari upplýsingar um Félag húsbílaeigenda er að finna hér á heimasíðu félagins

Axel Þór Friðriksson, 98 ára, sem fer um allt á húsbílnum sínum.Magnús Hlynur Hreiðarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×