Dramatískt jafntefli í Íslendingaslag Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 8. september 2021 19:13 Elvar Örn Jónsson skoraði fimm mörk fyrir Melsungen í dag. EPA-EFE/Petr Josek Þýska úrvalsdeildin í handbolta hófst í dag með fimm leikjum og það voru Íslendingar í eldlínunni í þremur þeirra. Bjarki Már Elísson og félagar hans í Lemgo gerðu 26-26 jafntefli gegn Íslendingaliði Melsungen. Elvar Örn Jónsson var markahæstur Íslendinga með fimm mörk.
Nokkuð jafnræði var með liðunum framan af fyrri hálfleik en Melsungen virtist alltaf vera einu skrefi á undan. Þeir náðu mest fjögurra marka forskoti áður en Bjarki Már og félagar minnkuðu í eitt rétt fyrir hálfleik og staðan þegar að gengið var til búningsherbergja var því 12-11, Melsungen í vil. Seinni hálfleikur var sipaður þeim fyrri og mikið jafnræði var með liðunum. Liðin skiptust á að skora, en Melsungen var þó alltaf skrefi á undan. Lokamínúturnar buðu upp á mikla spennu og Bjarki Már og félagar jöfnuðu í 26-26 þegar tæp mínúta var til leiksloka. Eins og áður segir var Elvar Örn Jónsson markahæstur Íslendinga með fimm mörk og liðsfélagi hans, Arnar Freyr Arnarsson skoraði þrjú. Alexander Petersson skoraði eitt mark fyrir gestina og Bjarki Már gerði þrjú mörk fyrir heimamenn í Lemgo. Janus Daði Smárason og félagar hans í Göppingen heimsóttu Hamburg í sínum fyrsta leik á tímabilinu. Heimamenn í Hamburg höfðu frumkvæði framan af og náðu mest þriggja marka forskoti í fyrri hálfleik og fóru með 16-15 forystu inn í búningsklefa. Liðin skiptust á að hafa forystuna í seinni hálfleik og þegar að stutt var til leiksloka var allt jafnt, 26-26. Janus og félagar voru sterkari á lokasprettinum og skoruðu tvö mörk gegn einu marki Hamburg og unnu þar með góðan sigur, 28-27. Þá töpuðu Daníel Þór Ingason og félagar hans í HBW Balingen-Weilsetten 33-24 þegar að liðið heimsótti Kiel. Heimamenn í Kiel náðu mest fimm marka forskoti í fyrri hálfleik, en þegar að flautað var til hálfleiks var staðan 13-11. Liðin skiptust á að skora í upphafi seinni hálfleiks, en þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka tóku leikmenn Kiel öll völd og stungu af. Lokatölur 33-24, en Daníel Ingi skoraði tvö mörk í liði HBW Balingen-Weilsetten.
Handbolti Þýski handboltinn Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira